Áþreifanlegir titlar og stillingar

Breytt Mon, 2 Des kl 1:04 PM

EFNISYFIRLIT


Þegar verið er að nota leitina þá birtist alltaf það bókasafn sem notandi er skráður á efst í leitarlistanum ef bókasafnið á til forða af því sem leitað er að. Hér eru nánari útskýringar á því hvað liggur á bakvið hverja leit í Gegni. 


Áþreifanleg titla leitin er aðeins að leita að titlum sem eru til í þínum safnakjarna. Hægt er að nota leitina til þess að taka frá efni og panta. Ekki er hægt að fara upp í Landskarna í þessari leit, það er aðeins hægt í Allir titlar leitinni. 


Valin söfn síunin festist inni fyrir allar áþreifanlegar leitir, sjá leiðbeiningar hér



Að sía leit

Hægt er að nota flokkana vinstra megin á skjánum til þess að sía leitina eftir tilteknum atriðum. Hægt er að sía eftir efnistegund, tegund viðfangs, tungumáli og útgáfuári.

 


Ef flokkunarvalkostirnir sjást ekki gæti þurft að smella á örvarnar til hægri.




Aðgerðir

Hægt er að vinna mismunandi aðgerðir undir hverri færslu. 



Aðeins er þörf á að nota örfáar aðgerðir af því sem er í boði á þessum lista. Hér koma upplýsingar um algengustu aðgerðir. 

Breyta færslu opnar skráningarfærsluna í lýsigagnaritlinum. Einungis þeir sem eru með réttar heimildir geta breytt færslum. 

Forði sýnir allan forða af þessari færslu í safnakjarnanum.

Eintök sýnir lista yfir öll eintök af þessari færslu í safnakjarnanum. 

Pöntun er byrjunin á aðfangaferlinu, sjá  hér.

Beiðni er t.a.m. notað til þess að útbúa frátekt fyrir lánþega, sjá hér

Beiðni um millisafnalán er notað þegar verið er að útbúa millisafnalán fyrir lánþega, sjá hér.

Birta í leit er hægt að nota til þess að skoða færsluna á leitir.is.



Stillingar

Hægt er að stilla hvernig niðurstöður birtast í leitinni. Með því að velja „Stækka“ og „Stækka allt“ í hægra horninu á leitinni er hægt að sjá ítarlegri niðurstöður í boði undir hverjum titli. 




Við þetta birtast niðurstöður undir titlunum.



Einnig er hægt að smella á örvarnar niður til þess að stækka eina og eina færslu í einu.



Gluggarnir sýna svo hversu margar forðafærslur eru undir hverjum titli og tiltæk eintök í hverri forðafærslu. Ef þú átt til eintak af einhverjum titli þá birtast forðafærslurnar þínar efst í hverjum glugga. 


 

Í þessari leit er bæði hægt að skoða forða og eintök nánar undir hverjum titli. Ef smellt er á forða eða eintök er hægt að þrengja leitina eftir bókasafni með því að smella á bókasafn og leita að tilteknu bókasafni. 

 



Tannhjólið

Með því að smella á tannhjólið í hægra horninu er hægt að stilla hvernig og hvaða upplýsingar birtast í leitarniðurstöðunum.



Smella skal á „Sýna allt“ til þess að fá heildar yfirlit yfir þær stillingar sem eru í boði.



Hér er hægt að velja hversu margir dálkar eiga að vera í hverri færslu. Það er sjálfkrafa stillt á að vera með 3 dálka. 



Í stillingunum í tannhjólinu er einnig hægt að haka af eða á fyrir mismunandi upplýsingar og draga upplýsingar á milli dálka. 



Vinstra megin í stillingunum er dálkur sem heitir „Aðgerðaröð“, þessar stillingar ráða því hvernig aðgerðirnar raðast upp og hvað birtist fyrst. 



Það sem situr í „Hnappur 1“ og  „Hnappur 2“ er það sem birtist hér.



Best er að vera með þær aðgerðir sem eru mest notaðar í þessum hnöppum. Einnig er hægt að haka út það sem er ekki notað svo að það flækist ekki fyrir.



Þegar búið er að laga allar stillingar er mikilvægt að velja „Vista“.





Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina