Almennar upplýsingar um millisafnalán : Millisafnalán - inngangur
EFNISYFIRLIT
- Skref 1 - Leita að titli undir „Allir titlar"
- Skref 2 - Skoða hver á eintak og velja „Beiðni um millisafnalán“ undir þrípunktum
- Skref 3 - Fylla út beiðni um millisafnalán fyrir lánþega
Skref 1 - Leita að titli undir „Allir titlar"
Ef lánþegi biður um að láta útbúa millisafnalánabeiðni fyrir sig þarf að byrja á því að finna titilinn. Fletta skal upp titlinum undir „Allir titlar“.

Skref 2 - Skoða hver á eintak og velja „Beiðni um millisafnalán“ undir þrípunktum
Fyrst skal fullvissa sig um að þitt bókasafn eigi ekki til eintak af titlinum, því ef eintak er til í þínu bókasafni þá þarf lánþeginn ekki millisafnalán heldur venjulega frátektarbeiðni.
Nú þarf að skoða hvaða safn á tiltækt eintak og leggja það á minnið. Þetta er væntanlegur samstarfsaðili.
Athugið að ef titillinn finnst ekki í safnakjarnanum ykkar þarf að skoða upp í Landskjarna hvort að titillinn finnist þar.
Þegar rétta færslan er fundinn er smellt á þrípunktana og velja svo „Beiðni um millisafnalán“.

Skref 3 - Fylla út beiðni um millisafnalán fyrir lánþega
Nú opnast formið fyrir millisafnalánabeiðni og það þarf að fylla það út fyrir hönd lánþegans. Nauðsynlegt er að fylla út eftirfarandi reiti undir „Eiginleikar beiðni“:
- „Lánþegi“
- „Safn lánþega“ - þetta er safnið sem setur inn beiðnina fyrir hönd lánþegans (þitt safn)
- „Umbeðinn afhendingarstaður“ - ef það kom ekki sjálfkrafa þá þarf að fylla þetta út
- Velja samstarfsaðila

Þegar smellt er á „bæta við samstarfsaðila“ er hægt að leita að bókasafninu sem á að fá millisafnalánabeiðnina. Haka við rétta bókasafnið og ýta á „Velja“.

Þegar búið er að setja inn samstarfsaðila er smellt á „Vista og breyta“ efst í beiðnaforminu.

Ef það koma upp skilaboð „Viðvörun – Umbeðinn titill er til í safnakjarnanum.“ skal smella á Staðfesta.

Nú hefur hnöppunum efst fjölgað og hægt er að ýta á „Senda“.

Beiðnin er nú farin af stað til samstarfssafnsins. Hægt er að skoða hana með því að fara í „Útsendar MSL-beiðnir“ undir útlán til þess að finna beiðnina.

Beiðnin ætti að vera með stöðuna „Beiðni send til samstarfsaðila“.

Nú er boltinn hjá samstarfssafninu.
Þegar eintakið berst á þitt safn þarftu að nota leiðbeiningarnar Millisafnalán á safni lánþega - tekið á móti, lánað og skilað
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina