Almennar upplýsingar um millisafnalán : Millisafnalán - inngangur
EFNISYFIRLIT
Bók kemur á safn
Skref 1 - Fara í „Útsendar MSL-beiðnir“ og velja „Taka á móti“ í þrípunktunum
Þegar bókasafn hefur fengið bók í pósti sem á að fara í millisafnalán þarf starfsmaður að byrja á því að skoða „Útsendar MSL-beiðnir“ undir útlán.

Beiðnin ætti að vera með stöðuna „Sent á áþreifanlegan hátt“.

Næst þarf að móttaka eintakið, það er gert með því að fara í þrípunktana og velja „Taka á móti“.

Þá opnast form sem þarf að fylla út.

ATH! Það þarf að muna að haka við „Já“ í „Prenta miða sjálfkrafa“ þar sem tímabundið strikamerki er á miðanum sem þarf að nota í staðinn fyrir strikamerkið sem er á bókinni.- Gott er að haka við að „Láta lánþega sjálfkrafa vita“ og þá fær lánþegi póst um að bókin sé tilbúin til útláns.
- Það er hægt að velja eintakastöðu en það er ekki nauðsynlegt þar sem að eintakið lánast sjálfkrafa í mánuð ef reitur er tómur.
- Einnig er hægt að breyta „Kostnaður við móttöku“ en sá reitur fyllist sjálfkrafa út miðað við útlánareglur í kerfinu. Þær stillingar verða fínstilltar síðar.
- Tímabundið strikamerki sem kerfið hefur búið til verður að vera óhreyft.
Þegar búið er að fylla allar upplýsingar út skal smella á „Áfram“.
Skref 2 - Festa miða sem prentast út á bók, helst yfir upprunalegt strikamerki bókar
Þegar miði hefur prentast út skal festa hann við bókina svo að upplýsingarnar sem eru á honum týnist ekki. Það er best að festa miðann yfir strikamerkið sem er nú þegar á bókinni til þess að sporna gegn því að upprunalega strikamerkið verði óvart skannað.
Nú er beiðnin með stöðuna „Eintak móttekið á bókasafni“.

Nú sést beiðnin einnig undir „Virk frátektarhilla“ undir Útlán þar sem bókin bíður eftir því að vera sótt af lánþega.

Ef leitað er að titlinum sést að kerfið hefur búið til tímabundna bókfræðifærslu fyrir eintakið þannig að það er eins og bókasafnið eigi til eintak af bókinni. Safndeildin er skráð sem „Millisafnalán“ og færslan er með lítið auga til hliðar, sem þýðir að hún birtist ekki á leitir.is. Þessi færsla mun svo hverfa þegar lánþegi hefur skilað eintakinu.

Lánþegi sækir bókina
Skref 3 - Lána út með (RS-354ILC…) strikamerki - Aldrei nota upprunalegt strikamerki. Rukka lánþegann um gjaldið sem verður til á kortinu hans
Þegar lánþegi er kominn á safnið til þess að fá bókina lánaða skal fara í „Umsjón með lánþegaþjónustu“ og skanna kort lánþegans.
- Nú þarf að passa að skanna inn rétt strikamerki.
- Aldrei skal skanna inn alvöru strikamerkið á bókinni
Það þarf að passa að skanna inn strikamerkið sem kerfið bjó til fyrir millisafnalánið (RS-354ILC…)

Þegar útlánið er skoðað sést safn lánþegans sem heimasafn, því að það er safnið sem á tímabundna eintakið. Tímabundna strikamerkið sést líka.

Lánþegi er nú þegar kominn með gjald fyrir millisafnalánið og hægt að rukka hann.
Þegar eintakið hefur verið lánað út fær beiðnin stöðuna „Eintak lánað til lánþega“ þegar skoðað er undir „Útsendar MSL-beiðnir“.

Lánþegi skilar bókinni
Skref 4 - Bók er skilað, skanna inn í skilaglugga (RS-354ILC…) strikamerki
Þegar lánþegi skilar eintakinu aftur á safnið þarf að fara í skilagluggann og passa að skanna inn tímabundna strikamerkið (RS-354ILC…)

Þá kemur upp gluggi sem segir hvert bókin á að fara.

Nú er lánþeginn laus allra mála.
Þegar lánþeginn er búinn að skila fær beiðnin stöðuna „Eintaki skilað til samstarfsaðila“ ef skoðað er undir „Útsendar MSL-beiðnir“.

Tímabundna bókfræðifærslan og tímabundna eintakið er hvort tveggja horfið.
Skref 5 - Pakka inn og senda eintak til baka
Nú þarf einungis að pakka eintakinu inn og setja það í póst til heimasafnsins.
Beiðnin fær ekki stöðuna „Beiðni lokið“ fyrr en heimasafnið hefur skannað eintakið inn sín megin. Hægt er að fylgjast með stöðunni með því að skoða undir „Útsendar MSL-beiðnir“ undir „Útlán“. Þegar beiðni hefur fengið stöðuna „Beiðni lokið“ þá telst hún ekki lengur virk, þannig að hún sést ekki ef leitarsíur eru stilltar á „Virkt“

Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina