Samþykkja endurnýjun millisafnaláns

Breytt Fri, 10 Maí kl 10:32 AM

EFNISYFIRLIT

Inngangur

Hægt er að hefja endurnýjunarferli millisafnaláns á ýmsan hátt, sjá nánar um endurnýjanir.


Þessi grein gerir ráð fyrir að starfsmaður á safni eintaksins afgreiði beiðni um endurnýjun sem barst frá safni lánþegans. 


Starfsmaður getur ýmist séð endurnýjunarbeiðni í verkefnalista eða fundið millisafnalán með stöðuna „Endurnýjunar óskað“.



Skref 1a - Starfsmaður sér í verkefnalista að beiðni er með athugasemdir

Hafi safn lánþegans sett inn athugasemd með endurnýjunarbeiðninni þá birtist millisafnalánið á verkefnalista hjá safni eintaksins undir „Aðsendar MSL-beiðnir > Með virkar athugasemdir“:



Með því að smella á „Með virkar athugasemdir - án úthlutunar“ birtast beiðnirnar sem eru með virkar athugasemdir. Staða slíkra beiðna getur t.d. verið „Endurnýjunar óskað“.



Skref 1b - Starfsmaður sér beiðni með stöðuna „Endurnýjunar óskað“

Hafi safn lánþegans ekki sett inn athugasemd með endurnýjunarbeiðninni þá birtist millisafnalánið ekki heldur á verkefnalista hjá safni eintaksins. Slíkar beiðnir sjást þó alltaf undir Útlán > Aðsendar MSL-beiðnir og eru með stöðuna „Endurnýjunar óskað“.



Skref 2 - Samþykkja eða hafna endurnýjun

Starfsmaður getur samþykkt endurnýjunarbeiðnina eða hafnað henni.

Það er gert með því að ýta á þrípunktana og velja „Endurnýja“.



Í forminu er hægt að velja „Já“ eða „Nei“ við því hvort eigi að samþykkja endurnýjunina.


Ef samþykkja á endurnýjun þá þarf að velja inn nýjan skiladag. 


Einnig er hægt að setja inn texta í athugasemd til samstarfsaðila. Ef það er gert þá birtist millisafnalánið í verkefnalista hjá samstarfssafninu.


Ýta svo á hnappinn „Endurnýja“




Beiðnin fær nú stöðuna „Móttekið af samstarfsaðila“ og skiladagur hefur uppfærst.



Sjálfkrafa póstur er einnig sendur til lánþegans um að millisafnalánið hafi verið endurnýjað. Sá póstur er sendur í nafni safns lánþegans.



Skref 3 - Gera athugasemd óvirka svo hún hverfi úr verkefnalista


Hafi safn lánþegans sett inn athugasemd með endurnýjunarbeiðninni þá birtist millisafnalánið á verkefnalista hjá safni eintaksins undir „Aðsendar MSL-beiðnir > Með virkar athugasemdir“. 


Þessi athugasemd verður ekki sjálfkrafa óvirk þó að endurnýjun hafi verið samþykkt.


Inni í beiðninni er hægt að merkja athugasemdir sem „óvirkar“ til að millisafnalánið hverfi af verkefnalista.


Smellið á „Athugasemdir“ og svo á bláa sleðann hjá „Active notes“. Þá verður sleðinn grár og athugasemdin óvirk. 


Við þetta sést millisafnalánabeiðnin ekki lengur í verkefnalista undir „Með virkar athugasemdir“.




Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina