Almennar upplýsingar um millisafnalán : Millisafnalán - inngangur
Ef lánþeginn þinn biður um millisafnalán á efni sem er þegar til í þínu safni þá þarft þú að breyta MSL-beiðninni í frátekt.
Byrja þarf á að finna beiðnina, annað hvort út frá verkefnalistanum eða í lista yfir allar útsendar beiðnir (Útlán > Útsendar MSL-beiðnir).

eða

Þegar beiðnin er á skjánum er smellt á þrípunktana hjá titlinum og velja „Skoða staðbundin viðföng“.

Þá opnast titillinn í upplýsingaglugga og hægt að sjá hvaða bókasöfn í safnakjarnanum eiga til eintak.
Ef þitt bókasafn á eintak skaltu velja „Beiðni“ undir þrípunktinum hjá titlinum.

Nú opnast frátektarformið, en það er þegar búið að fylla út upplýsingar um lánþegann og afhendingarstaðinn.
- Haka þarf við „Hætta við beiðni um útsenda MSL-beiðni í millisafnaláni.“
- Svo skal smella á „Senda inn“.

Millisafnalánabeiðnin fær stöðuna „Starfsmaður hætti við“ og frátektarbeiðni hefur orðið til í staðinn.
- Ef eintakið er tiltækt þá er frátektarbeiðnin komin á verkefnalista um að sækja í hillu
- Að öðrum kosti fer lánþeginn á biðlista eftir næsta eintaki sem losnar
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina