Að laga POL línur sem eru í yfirferð

Breytt Tue, 23 Apr 2024 kl 09:39 AM

Þessar leiðbeiningar miðast við að ferillinn byrji í "Taka á móti" 


Á síðunni „Taka á móti“ gerist það stundum að pöntunarlína (POL) er föst í stöðunni „Í yfirferð“.

Stundum sjást líka pöntunarlínur „Í yfirferð“ í verkefnalistanum.



Hvers vegna gerist þetta?

  • Það gæti hafa gleymst að ýta á „Panta núna“
  • Starfsmaður gæti hafa yfirgefið pöntunarlínuna í miðjum klíðum, t.d. til að vinna í útlánum.


Hvernig er hægt að laga það sem er í yfirferð?


Skref 1 - Smella á POL-númerið og ýta á „Breyta“


Hér er POL lína sem er föst í „Taka á móti“. Það sést að pöntunin er föst í stöðunni „Í yfirferð“ (en ekki „Sent“) og ekki er hægt að haka við til þess að taka á móti titlinum.


Smella þarf á POL-númerið í fremsta dálki til að uppfæra pöntunina.




Ýta á „Breyta“ til að lagfæra pöntunarlínuna




Skref 2 - Laga efnistegund og efnisveitanda (Sýndarbirgir)


Nokkur atriði úr upphaflegu færslusniði hafa dottið út.


Velja rétta efnistegund, t.d. „Bók“.  Í efnisveitandi skal velja „Sýndarbirgir“. 



Skref 3 - Bæta við eintökum ef þarf


Ef engin eintök eru í pöntunarlínunni þarf að bæta þeim við eins og vanalega.


 


Skref 4 - Ýta á „Panta núna“




ATH: Stundum eru pöntunarlínur "Í yfirferð" afrit (tvöföldun) á því sem þegar er til í safni. Þetta gerist einkum ef starfsmaður hefur þurft að yfirgefa pöntun í miðjum klíðum en byrjar svo aftur frá grunni. Þá eru orðnar til tvær pantanir og jafnvel tvö eintök þar sem aðeins á að vera eitt eintak. Í þeim tilfellum er best að ljúka pöntunarferlinu alveg áður en aukaeintaki er eytt út.




Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina