Að laga POL línur sem eru á verkefnalistanum

Breytt Mon, 7 Okt kl 9:32 AM

Þessar leiðbeiningar miðast við að ferillinn byrji á „verkefnalistanum“. 


Einstaka sinnum geta pöntunarlínur farið í gegnum aðfangaferlið án þess að það hafi verið smellt á „Panta núna“. Það sem gerist þá er að pöntunarlínurnar eru fastar í kerfinu og á verkefnalistanum í stöðunni „Í yfirferð“. 



Hvers vegna gerist þetta?

  • Það gæti hafa gleymst að ýta á „Panta núna“.
  • Það hefur verið smellt á „Vista“ í staðin fyrir „Panta núna“.   
  • Starfsmaður gæti hafa yfirgefið pöntunarlínuna í miðjum klíðum, t.d. til að vinna í útlánum.
  • Eintak hefur verið móttekið og aðfangaferlinum lokið án þess að smella á „Panta núna“. 


Hvernig er hægt að laga það sem er í yfirferð?


Skref 1 - Smella á Yfirferð - án úthlutunar á verkefnalistanum

Fyrst skal smella á Pöntunarlínur og svo á Yfirferð - án úthlutunar.



Hér eru POL línur sem er fastar á verkefnalistanum en eintökin undir eru komnar upp í hillu. Ef rétt hefði verið farið að þá væru pöntunarlínurnar í stöðunni „Sent“. 



Skref 2 - Smella á þrípunktana og svo á „Panta núna.


Til þess að losa pöntunarlínurnar af verkefnalistanum er nóg að smella á þrípunktana og velja „Panta núna“. 


Hægt er að smella á Endurnýja“ og þá ætti pöntunarlínan að hverfa af litanum.





Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina