2. Móttaka - Taka á móti

Breytt Mon, 27 Okt kl 3:12 PM

Eins og kom fram í leiðbeiningum 1. Pöntun verður búa til pöntun óháð því hvaðan nýtt efni á bókasafninu er komið. 


Taka á móti nýju efni á bókasafnið


Aðfangaferlið getur verið flókið í byrjun en þegar búið er að fara einu sinni í gegnum ferlið án þess að vandamál komi upp verður vinnan auðveldari síðar.


EFNISYFIRLIT


Skref 1 - Smella á „Taka á móti“ undir Aðföng í vinstri valmyndinni




Mikilvægt er að fylgja leiðbeiningunum hér fyrir neðan nákvæmlega.


Þegar verið er að „Taka á móti“ nýju efni á bókasafnið í fyrsta sinn þarf að passa að velja næsta rétta skref í ferlinu. Mikilvægustu stillingarnar eru undir skrefi 2 og ef þær eru ekki réttar getur þú lent í vandræðum. 


Skref 2 - Passa að haka við „Halda innan deildar“


Móttaka á nýju efni hefst með því að haka við „Halda innan deildar“. Þú kemst ekki áfram í aðfangaferlinu nema það sé valið að „Halda innan deildar“. Ef það er ekki gert skráir kerfið eintökin eins og þau séu komin beint upp í hillu.


Þar sem næsta þrep í ferlinu er að laga kjalmerkingar eða uppfæra raðtákn skal velja „Miðar og prentun 1“ (Miðar og prentun 2 getur verið möguleiki hjá stærri söfn þar sem fleiri en einn aðili koma að skráningu).



Skref 3 - Sía lista eftir „Allt (nema lokað)“ og vera í flipanum „Einu sinni“


Það þarf að sía listann rétt og passa að vera alltaf með stillt á stöðuna Allt (nema lokað)“ til þess að sjá alla titla sem hafa verið pantaðir.
Einnig þarf að vera í flipanum Einu sinni“ þegar verið er að vinna með eintök af bókum, spil o.fl. Flipinn Áskrift er notaður fyrir tímarit.



„Staða“ á bókunum á að vera „Sent



Skref 4 - Haka við titlana sem á að móttaka og ýta á „Taka á móti“


Næsta skref er að haka við þær bækur sem á að móttaka og ýta á „Taka á móti“.
(Ekki skal nota hnappinn „Móttaka allt“) 



Nú á það sem hakað var við að hverfa af listanum.


Eftir þennan feril eru titlarnir aðgengilegir á leitir.is en skráðir sem ekki tilbúnir til útláns þar sem þeir eru enn í aðfangaferlinu.


Ef eitthvað er fast á listanum þarf að skoða pöntunarlínuna (POL) og athuga hvort að eitthvað hafi gleymst.



Algeng vandamál



ATH: Ef titlar sem verið var að panta birtast ekki í „Taka á móti“ þarf að skoða síunina. Athuga hvort pöntunarlínur eru með stöðuna: „Allt (nema lokað„ og passa að vera í flipanum Einu sinni. Sjá skref 3. 


 

ATH: Ef bækur eru í stöðunni „Í yfirferð“ þarf að laga pöntunarlínuna (POL). 
Sjá leiðbeiningar: Að laga POL línur sem eru í yfirferð




Sjá leiðbeiningar um  næsta skref á aðfangafæribandinu: 


3. Uppfæra raðtákn (Eintök í vinnslu og lýsigagnaritill)



 





Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina