Í Gegni er ferlið við að bæta við eintök hugsað sem einskonar verkferlar á færibandi.
Ef ætlunin er að bæta við 7 titlum á safnið þá er öllum 7 titlunum fylgt eftir í gegnum færibandið þar sem að hver verkferill er kláraður í stað þess að fara fram og til baka á færibandinu með hvern og einn titil fyrir sig.
Verkferlarnir á færibandinu eru 6 talsins:
Pöntun – Móttaka – Kjalmiða yfirferð – Kjalmiða prentun – Plöstun – Ljúka ferli.
Smellið á kaflaheitin hér neðan við myndina til að fá nánari leiðbeiningar.
- Skref 1 - Finna rétta bókfræðifærslu með ISBN númeri (eða titli) undir Allir titlar.
- Skref 2 - Smella á pöntun, annaðhvort í hnöppunum eða í þrípunktunum.
- Skref 3 - Fylla út pöntunarglugga
- Skref 4 - Bæta við fjölda eintaka, safndeild og reglu eintaks
- Skref 5 - Smella á „Panta núna“
- Skref 1 - Smella skal á „Taka á móti“ (undir aðföng í vinstri valmyndinni).
- Skref 2 - Passa þarf að vera með hakað við „Halda innan deildar“. Þar skal velja næsta skref í ferlinu.
- Skref 3 - Listi á að vera síaður eftir „Allt (nema lokað)“ og vera í flipanum „Einu sinni“.
- Skref 4 - Haka við titlana sem á að móttaka og ýta á taka á móti. Titillinn á að hverfa af listanum.
- Skref 1 - Smella skal á „Eintök í vinnslu“ (undir aðföng í vinstri valmynd).
- Skref 2 - Smella á þrípunktana og velja „Breyta eintaki í safnskrá“.
- Skref 3 - Til þess að breyta forðafærslunni er smellt á hlekkinn undir „Forði“ hægra megin á skjánum (eða efst uppi á skjánum, fer eftir skjálögun).
- Skref 4 - Smella á „Breyta“.
- Skref 5 - Laga kjalmerkinguna fyrir aftan 852. Passa að stroka ekki út $$h.
- Skref 6 - Smella á „Vista og losa færslu“, fara til baka í „Eintök í vinnslu“.
- Skref 7 - Aðeins ef þarf að breyta um strikamerki skal smella á „Fela lýsigagnaritil“, breyta um strikamerki og velja „Vista“.
- Skref 1 – Smella á „Eintök í vinnslu“ (undir aðföng í vinstri valmynd).
- Skref 2 – Smella á SpineOmatic appið í „Miðstöð skýjaforrita“ efst í hægra horninu.
- Skref 3 – Haka við þau strikamerki sem á að prenta út.
- Skref 4 – Velja rétt „Layout“ og „Template“ og smella á „Print x labels“.
- Skref 5 – Smella á „Yes, clear and start over“ og loka glugganum.
- 5. Plöstun (Eintök í vinnslu)
- Valkvætt á hverju safni
- 6. Ljúka ferli (Eintök í vinnslu eða skanna eintök)
- Leið 1
- Fara í „Eintök í vinnslu“
- Velja „Lokið“
- Leið 2.
- Fara í „Skanna eintök“
- Velja „Tegund verkbeiðni“ – „Acquisition technical services“.
- Velja „Já“ fyrir aftan „Lokið“.
- Skanna inn eintökin
- Leið 1
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina