Nýr lánþegi á safni - að gefa lánþegaheimild

Breytt Fri, 17 May 2024 kl 01:54 PM


EFNISYFIRLIT


Inngangur


Þessar leiðbeiningar miðast við einstaklinga sem eru í þjóðskrá.  

  

Grunnupplýsingar um lánþegann eru sóttar úr þjóðskrá eins og nafn, heimilisfang og kyn.  Þegar lánþegi er sóttur í fyrsta skiptið úr þjóðskrá, fær hann úthlutað einstaklingsbundnu strikamerki. Sama strikamerki er hægt að skanna hjá öllum bókasöfnum á landinu.

Lánþeginn getur því notað sama skírteinið fyrir mismunandi söfn, en þarf engu að síður að fá heimildir í hverju safni fyrir sig.




Nýr lánþegi á safni


Til þess að skrá nýjan lánþega á safn skal fara í „Umsjón með lánþegaþjónustu“ (undir „Útlán“ í stikunni vinstra megin)






Á síðunni „Umsjón með lánþegaþjónustu þarf að finna lánþegann, ýmist með því að slá inn kennitölu, leita að nafni lánþega eða skanna kort sem lánþegi gæti hafa fengið á öðru safni. Þegar nafnið er fundið, smella  á  „Áfram“.  








Þá opnast síða fyrir útlánaglugga  - upplýsingar um lánþegann í stiku hægra megin sýna að hann er ekki með heimild á safninu.   Sömu skilaboð birtast ef lánþegaskírteinið er útrunnið á viðkomandi safni.  



Athugið að ef verið er að nota lítinn skjá eða of stórt letur geta upplýsingar um lánþega hliðrast til og birtast þá efst uppi í staðinn fyrir hægra megin á skjánum. 





Notendahópur


Það er mjög mikilvægt að lánþegar séu skráðir í réttan notendahóp því annars virka lánþegareglur ekki. Það þýðir að lánþeginn mun ekki geta fengið bók að láni á bókasafninu því að kerfið veit ekki hvaða réttindi þessi lánþegi hefur til þess að fá bækur að láni.  


Ef það stendur ekkert undir notendahópur, þarf að bæta honum við.





Smella á „Breyta upplýsingum notanda“, ef sá flipi er til staðar.






Hjá sumum söfnum birtist þessi flipi ekki - þess í stað þarf að smella á þrípunktana við nafn lánþegans.


Velja þar „Breyta upplýsingum notanda “ úr felliglugganum.



Síðan velja „Notendahópur þá opnast fellilisti sem hægt er að velja úr í samræmi við stöðu lánþegans. 



Ef gefa á lánþeganum lykilorð (fyrir leitir.is/Rafbókasafnið) eða PIN (fyrir sjálfsafgreiðsluvél) er gott að gera það í leiðinni.


Sjá leiðbeiningar:  Innskráning, lykilorð og PIN-númer



Mikilvægt að vista breytingarnar með því að smella á hnappinn „Uppfæra notanda“



Eru upplýsingar um lánþegann réttar?

 

Ef um nýjan lánþega er að ræða þarf að setja inn netfang og símanúmer. Ef lánþeginn er að endurnýja kortið sitt þá þarf einnig að yfirfara þessar upplýsingar.


Frá útlánasíðu lánþegans (Umsjón með lánþegaþjónustu) er best að smella á kennitöluna/ID í renningnum til hægri.






Samskiptaupplýsingar


Smella svo á  „Samskiptaupplýsingar og bæta við netfangi og símanúmeri ef þær upplýsingar vantar.



Þegar verið er að bæta við netfangi og símanúmeri er mikilvægt að haka alls ekkí „Bæta við sem ytra“

Sjá nánari leiðbeiningar:  Samskiptaupplýsingar


Strikamerki


Hver lánþegi fær einstaklingsbundið strikamerki sem er sjálfkrafa sótt upp í landskjarna, eins og nafn, heimilisfang og kyn.   

Sjá nánari upplýsingar:  Auðkenni 




Þetta þýðir að hver einstaklingur verður einungis með eitt strikamerki fyrir öll bókasöfn á landinu.

Lánþeginn getur notað sama skírteinið fyrir mismundandi söfn. 


Það þarf þó að fá lánþegaheimild á hverju safni fyrir sig.  


Sjá leiðbeiningar:   Að prenta út stök lánþegaskírteini     

                          



Uppfæra notanda 


Þegar búið er að leiðrétta allar upplýsingar er smellt á „Uppfæra notanda“ ef unnið er út frá síðunni „Flýtiumsjón notanda“     


  - eða smellt á  „Vista“ ef verið er á síðunni  „Upplýsingar um notanda“ 



Flýtiumsjón notenda




Upplýsingar um notanda






Bæta við heimild á safni


Til þess að gefa lánþeganum heimild á þínu safni er smellt  á „Bæta við/endurnýja heimild lánþega“ 





Þá opnast gluggi  með heiti safnins og gildistíma heimildar.  Smella á „Bæta við“                                 



Varúð: Ef aftur er farið í „Bæta við heimild lánþega“ þá fær lánþeginn viðbótar gildistíma í hvert sinn. Skoðið dagsetningar vel og metið hvort eigi að bæta við eða hætta við.



Endurnýjunarglugginn lítur nánast eins út - athuga nýjan lokadag gildistíma.




Upplýsingarnar um lánþegann í hægri stiku eru nú breyttar.  Hann tilheyrir ákveðnum notendahópi. Einnig bætist við gjaldið sem lánþeginn á að greiða fyrir skírteinið á viðkomandi safni, samkvæmt gjaldskrá.







Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina