EFNISYFIRLIT
Hvað er notendahópur?
Notendahópur lýsir lánþeganum og þeirri þjónustu sem hann fær frá bókasafninu.
Allir lánþegar verða að tilheyra einhverjum notendahópi. Innan hvers safnakjarna getur hver lánþegi aðeins verið með einn skilgreindan notendahóp hverju sinni.
Margir notendahópar eru sértækir fyrir ákveðnar safnategundir og eru því aðeins í boði í viðeigandi safnakjörnum.
Nokkur söfn rukka lánþega um sektir og/eða skírteinisgjöld. Slík gjöld ráðast oftast af notendahópum miðað við gjaldskrár safnanna. Verði breytingar á gjaldskrá safns þarf að tilkynna það til Landskerfis bókasafna svo hægt sé að uppfæra stillingar í kerfinu.
Ath: Grunnskólasöfn og framhaldsskólasöfn rukka hvorki sektir né önnur gjöld.
Notendahópar í Gegni
Notendahópar eftir safnakjörnum:
Notendahópur | Kóði | ALM | FRAMHSK | GRUNNSK | HALA | HEILBR | HR | LBS | LHI | SERFR |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Almennur lánþegi | 01 | x | x | x | x | x | x | x | x | |
Almennur lánþegi 1 mán. | 1MAN | x | ||||||||
Almennur lánþegi 3 mán. | 27 | x | ||||||||
Annað/Aðrir | 25 | x | x | x | x | x | x | x | x | |
Barn (0-12 ára) | 03 | x | x | |||||||
Bókin heim/Skip | 06 | x | x | |||||||
Doktorsnemi | 16 | x | x | x | x | |||||
Ekkert árgjald v. lögheimilis | LOGHEIMILI | x | ||||||||
Framhaldsskólanemi | 32 | x | x | |||||||
Frítt skírteini | 04 | x | x | |||||||
Gestur/Fræðimaður | 12 | x | x | x | ||||||
Gjaldfrjálst | 13 | x | ||||||||
Grunnskólanemi | 29 | x | x | |||||||
Grunnskólanemi miðstig | 21 | x | x | |||||||
Grunnskólanemi unglingastig | 22 | x | x | |||||||
Grunnskólanemi yngsta stig | 20 | x | x | |||||||
Háskólanemi framhaldsnám | 07 | x | x | x | x | |||||
Háskólanemi grunnnám | 24 | x | x | x | x | |||||
Kennari | 23 | x | x | x | x | x | x | x | ||
Kennslustofa | 34 | x | x | x | ||||||
Nemi (annað) | 17 | x | x | x | x | |||||
Starfsfólk (annað) | 44 | x | x | x | x | x | x | x | x | x |
Starfsfólk bókasafns | 05 | x | x | x | x | x | x | x | x | x |
Stofnun/fyrirt. (Borga) | 08 | x | x | |||||||
Stofnun/fyrirt. (Frítt) | 28 | x | x | x | x | x | x | x | x | x |
Unglingur (13-17 ára) | 02 | x |
Vorið 2025 fór fram tiltekt og samræming á kóðum og heitum fyrir notendahópa. Við tiltektina voru nokkrir notendahópar teknir úr notkun og fengu heitið „z Ekki notað“ og með kóðanúmer í sviga fyrir aftan. Þessir notendahópar þurfa að vera til staðar um sinn vegna tölfræðivinnslu, en munu að lokum hverfa úr kerfinu.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina