Hægt er að nota skýjaforrit sem sækir upplýsingar um staka lánþega svo hægt sé að prenta út stök lánþegaskírteini á strikamerkjaprentara.
Til þess að nota forritið þarf að virkja það með því að smella á miðstöð skýjaforrita (sjá Efsta valmyndin) leita að forriti sem heitir „CIL Nafnspjald“ og velja „Virkja“.
Lánþegar þurfa að vera á skjánum til þess að forritið geti lesið lánþegaupplýsingarnar. Það er t.d. hægt að fletta lánþeganum upp undir notendur eða opna lánþegaþjónustusíðu lánþegans. Svo skal smella á forritið.
Þá kemur upp gluggi með nafni lánþegans sem valkost. Með því að smella á þrípunktana er hægt að komast í stillingar fyrir forritið.
Þar skal velja hvernig rúllu er verið að nota í prentaranum og hvort eigi að prenta út strikamerki eða kenntölu á lánþegaskírteinið.
Þegar búið er að laga stillingar skal velja „Vista“og smella á „Til baka“.
Að lokum skal smella á lánþegann og þá sýnir forritið hvernig miðinn lítur út sem var valinn í stillingunum.
Ef þetta er réttur miði skal velja „Prenta“
Það þarf að passa að vera með stillt á réttan prentara og velja svo „Prenta“.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina