EFNISYFIRLIT
- Almennar upplýsingar
- Notendahópur
- Valin nöfn
- Lykilorð á leitir.is
- Að skoða gildistíma korts og heimildir lánþega
- Að breyta um PIN-númer fyrir sjálfsafgreiðsluvélar
Almennar upplýsingar
Á upplýsingasíðu notanda undir flipanum „Almennar upplýsingar“ eru upplýsingar sem ekki er hægt að breyta merktar með gráu.
Það eru upplýsingar sem sóttar eru úr Landskjarnanum, þ.e.a.s. nafn, kennitala, og kyn lánþega.
Mjög mikilvægt er að vista allar breytingar sem eru gerðar á þessari síðu áður en farið er yfir í annan flipa.
Notendahópur
Það er mjög mikilvægt að lánþegi sé skráður í notendahóp áður en hann fær heimildir á bókasafnið. Ef lánþegi er ekki skráður í notendahóp virka útlánareglur ekki sem skyldi og því getur hann ekki fengið neitt lánað frá bókasafninu. Það er mikilvægt að velja notendahóp sem þið kannist við að hafið notað áður úr gamla Gegni. Ástæðan fyrir því er að það er ekki búið að stilla alla möguleika sem eru í boði undir Notendahópur fyrir öll bókasöfn. Ef að útlánareglur virka ekki sem skyldi hjá lánþega þó að hann sé skráður í notendahóp gæti verið að það vanti einhverjar stillingar.
Valin nöfn
Upplýsingar sem eru geymdar í Landskjarnanum, svo sem heimilisfang, kyn og nafn uppfærast sjálfkrafa frá skráningu í Þjóðskrá Íslands. Ef lánþegi vill nota önnur nöfn en þau sem eru skráð hjá Þjóðskrá þá er hægt að nota reitina „Valin“ nöfn. Athugið að ef upplýsingum er breytt á þínu bókasafni breytast þær líka í öðrum bókasöfnum innan sama safnakjarna.
Nöfnin skila niðurstöðum í leit í Gegni hvort sem er um að ræða nafn úr Þjóðskrá eða valið nafn. Nöfnin sem eru valin eru samt sýnd framyfir nöfnin sem eru skráð hjá Þjóðskrá. Ef reitir eru tómir sjást nöfnin frá þjóðskrá.
Lykilorð á leitir.is
Undir „Umsjónarupplýsingar notanda“ er hægt að breyta um aðgangsorð notanda fyrir leitir.is. Þetta á einungis við ef búið er að gefa lánþeganum heimild á bókasafninu.
Ath. ef um starfsmann er að ræða þá er sama lykilorð notað til þess að skrá sig inn á leitir.is og Gegni. Ef breytt er um lykilorð á leitir.is breytist aðgangsorðið inn í Gegni líka. Starfsmenn geta ekki breytt um lykilorð hjá öðrum starfsmönnum, aðeins hjá lánþegum.
Til þess að breyta um lykilorð fyrir hönd lánþega á leitir.is er hægt að skrifa lykilorðið inn í reitinn „Aðgangsorð“ undir „Umsjónarupplýsingar notanda“. Lykilorð verður að vera lágmark 8 stafabil að lengd.
Ath: Kerfið gefur ekki villuboð þó að styttra lykilorð sé sett inn. Stutta lykilorðið vistast en dugir ekki til innskráningar.
Ef lánþegi er með skráð netfang þá er einnig hægt að senda lánþeganum tölvupóst með hlekk sem hann getur notað til þess að breyta um lykilorð sjálfur. Undir „Senda skilaboð“ er hægt að velja „Tölvupóstur: Endurstilling á aðgangsorð fyrir auðkenningarþjónustu“, svo skal smella á „Senda“ og þá fær lánþeginn tölvupóst.
Tölvupósturinn sem lánþeginn fær lítur svona út:
Hlekkurinn beinir lánþeganum á þessa síðu þar sem hann getur búið til nýtt aðgangsorð:
Lánþegi getur einnig breytt sjálfur um lykilorð á leitir.is.
Að skoða gildistíma korts og heimildir lánþega
Undir Notendahlutverk er hægt að sjá í hvaða bókasöfnum lánþeginn er með notendaheimild og gildistíma lánþegakortsins. Til þess að sjá gildistíma korts þarf að smella á tannhjólið undir „Notendahlutverk“, haka þar við „Gildistími“ og velja „Lokið“.
Að breyta um PIN-númer fyrir sjálfsafgreiðsluvélar
Á upplýsingasíðu lánþegans er hægt að úthluta PIN-númer fyrir viðurkenndar sjálfsafgreiðsluvélar. Ef lánþegi er með skráð netfang þá er hægt að smella á „Búa til“ hjá PIN-númer. Þá fær lánþeginn sendan tölvupóst með nýju PIN-númerið fyrir sjálfsafgreiðsluvélar.
Ef lánþegi vill velja sitt eigið lykilorð er hægt að skrifa PIN-númerið. PIN númerið skal vera 4 tölustafir og má ekki innihalda bókstafi. Ef lykilorð er skrifað inn þá skal ekki smella á „Búa til“ heldur smella á „Vista“ efst í hægra horninu. Þá fær lánþeginn tölvupóst um að PIN númerinu hans hafi verið breytt.
Lánþegi getur einnig breytt sjálfur um PIN-númer á leitir.is.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina