Það fyrsta sem þarf að gera er að finna forðann með því að leita að ISSN númerinu undir „Forðafærslur fyrir áþreifanleg viðföng“.

Það þarf að passa að velja rétta forðafærslu. Gott getur verið að sía listann eftir viðeigandi bókasafn undir flokkunarvalkostir, sjá leiðbeiningar hér. Næst skal fara í þrípunktana í forðafærslunni og velja „Skoða eintök“.

Í þessum glugga er t.a.m. hægt sía listann eftir „Dagsetning móttöku: Ekki móttekið eða móttekið".

Nú þarf að haka við þau eintök sem á að eyða út.
Þegar búið er að haka við öll eintökin skal velja „Umsjón með völdum atriðum“ og velja þar „Fjarlægja eintök“. Síðan skal staðfesta.

Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina