Að taka eintak frá fyrir lánþega

Breytt Mon, 3 Feb kl 1:34 PM

Sjá myndband neðst á síðunni. 



EFNISYFIRLIT



Í gegnum leit


Til þess að taka eintak frá fyrir lánþega þarf að leita að titlinum. Það er gert með því að fara í leitargluggann og farið í „Áþreifanlegir titlar“.  Aldrei má gera frátekt út frá leit að eintökum.



Ef eintakið er ekki tiltækt er hægt að taka það frá fyrir lánþegann.




Til þess að taka eintakið frá er farið í þrípunktana og smellt á „Beiðni“.






  • Nú opnast rennigluggi og þar skal velja tegund beiðni, „Frátekt“.




  • Hér þarf að skrá lánþegann í lánþegareitinn.


  • Ef reiturinn „Lýsing“ er í forminu, þá er mikilvægt að velja alltaf „Allt“ nema um fjölbindaverk eða tímarit sé að ræða. Í þeim tilfellum er hægt að velja hvaða fjölbindaverk eða tölublað lánþeginn vill taka frá. 
    Athugið: ef lýsing eintaks hefur ekki verið samræmd þá þarf að vita hvaða lýsing er á eintakinu sem bókasafnið á. Þess vegna er mikilvægt að öll bókasöfn noti samræmda lýsingu. 



  • Undir  „Afhendingarstaður“ skal velja þann afhendingarstað þar sem lánþeginn vill sækja eintakið. Lánþegi getur valið um að fá frátektina afhenta á þeim bókasöfnum sem hann er með lánþegaheimild í. Ef það er ekki til eintak af titlinum á þeim bókasöfnum sem lánþeginn er með lánþegaheimild í þá er ekki hægt að velja afhendingarstað.




Þegar búið er að fylla út upplýsingar er smellt á „Senda inn“ - efst á síðunni.





 

Í gegnum lánþegaþjónustusíðu


Það er hægt að senda inn frátektarbeiðni í gegnum lánþegaþjónustusíðu, undir „Beiðnir“. Efst á þeirri síðu skal smella á hnappinn „Búa til beiðni“.




Þá birtist lítill leitargluggi sem hægt er að leita í. Ef margar færslur koma til greina þá er betra að smella á bláu línurnar hægra megin við reitinn til að opna stærri leitarglugga (opnast í renniglugga).

Þegar titillinn er fundinn þá þarf að velja tegund beiðni og svo smella á hnappinn „Búa til“.




Nú opnast frátektarformið þar sem aðeins á eftir að fylla út upplýsingar um afhendingarstað og smella á „Senda inn“. 


  • Ef kemur upp gluggi þar sem beðið er um að velja „Lýsingu“ er mikilvægt að velja alltaf „Allt“ nema um fjölbindaverk eða tímarit sé að ræða. Þá er hægt að velja hvaða fjölbindaverk eða tölublað lánþeginn vill taka frá. Athugið: ef lýsing eintaks hefur ekki verið samræmd þá þarf að vita hvaða lýsing er á eintakinu sem bókasafnið á. Þess vegna er mikilvægt að öll bókasöfn noti samræmda lýsingu. 



  • Undir  „Afhendingarstaður“ skal velja þann afhendingarstað sem lánþeginn vill sækja eintakið. Lánþegi getur valið um að fá frátektina afhenta á þeim bókasöfnum sem hann er með lánþegaheimild í. Ef það er ekki til eintak af titlinum á þeim bókasöfnum sem lánþeginn er með lánþegaheimild í þá er ekki hægt að velja afhendingarstað.





Þegar búið er að fylla út upplýsingar er smellt á „Senda inn“ - efst á síðunni.









Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina