EFNISYFIRLIT
- Hvað er Alma Mobile 2?
- Innskráning og fyrstu stillingar
- Prentun úr appinu
- Sækja í hillu
- Skanna eintök
- Endurheimta
- Gervigreindaraðstoð
Hvað er Alma Mobile 2?
Alma mobile 2 er app sem er í boði fyrir bókasöfn til þess að vinna með eintök og frátektir, auk gervigreindaraðstoðar í bókfræðiskráningu.
Hægt að skoða ýmsar beiðnir sem þarf að sækja í hillu, t.d. frátektir og vinnslubeiðnir. Einnig er hægt að skanna inn eintökin. Ef eintak er frátekið sendist út tilkynning til lánþega um að eintakið sé tilbúið í frátektarhillu.
Gervigreindaraðstoð í bókfræðiskráningu er aðeins í boði fyrir skrásetjara með þar til gerða heimild.
Hægt er að sækja appið bæði í Google Play og Apple app store.
Innskráning og fyrstu stillingar
Við fyrstu innskráningu þarf að setja inn rétta vefslóð fyrir viðkomandi safnakjarna.
Sjá vefslóðirnar.
Ath. Það þarf að passa að setja líka inn https:// á undan vefslóðinni, annars kemur villa við innskráningu.
Notandanafn og lykilorð er svo það sama og inn í Gegni:

Til að skipta um tungumál er hægt að smella á tannhjólið og svo á nýtt tungumál


Áður en hægt er að nota appið þarf að velja staðsetningu neðst á skjánum og þar skal velja viðeigandi bókasafn. Einnig er hægt að smella á staðsetningarmerkið í efra vinstra horninu á skjánum. Þegar búið er að velja bókasafnið ætti nafnið á bókasafninu að birtast neðst á skjánum.


Prentun úr appinu
Ef ætlunin er að geta prentað frátektarmiða eða annað með notkun appsins þá þarf fyrst að gera flýtiprentun óvirka inni í Gegni. Venjulega á flýtiprentun að vera virk hjá starfsmanninum, en þegar appið er notað þá þarf að beina útprenti yfir í verkefnalistann undir „Biðröð útprents“ og það er gert með því að hafa flýtiprentunina óvirka.
Sjá leiðbeiningar: Að virkja flýtiprentun
Á meðan flýtiprentun er óvirk þá flytjast öll útprent starfsmannsins á verkefnalistann hans í Gegni, hvort sem prentverkin verða til með notkun appsins eða inni í Gegni. Prentverkin bíða þá á verkefnalistanum þar til starfsmaður smellir á þau og velur að prenta þau út.
Munið að virkja flýtiprentunina aftur að lokinni notkun á appinu.
Sækja í hillu
Ef smellt er á „Sækja í hillu“ birtist listi yfir allar beiðnir á safninu, hvort sem það eru frátektarbeiðnir, vinnslubeiðnir eða annað. Með því að smella á merkið í efra vinstra horninu er hægt að sía listann eftir dagsetningu beiðna, tegund beiðna, safndeild, raðtákni, endastað og efnistegund. Ef það er aðeins til eitt eintak sem uppfyllir beiðnina þá birtist númer strikamerkis, ef það eru til mörg eintök í hillu þá birtist ekkert strikamerki.

Ef smellt er á tannhjólið í efra hægra horninu er hægt að haka við að sjá nánari upplýsingar, við það sjást fleiri upplýsingar, t.d. útgáfuupplýsingar.

Ef strokið er með fingri til vinstri yfir eintak þá birtist möguleiki um að prenta miða eða smella á meira. Ef smellt er á meira er hægt að hætta við beiðni, merkja eintakið sem „finnst ekki“, endurúthluta umsjónarsafni frátektar eða breyta frátekt í millisafnalánabeiðni.

- Ef Hætta við beiðni er valið þá er hægt að velja ástæðu þess að hætt sé við beiðni og skrifa inn athugasemd. Mikilvægt er að haka við „Láta notanda vita“ annars fær lánþegi ekki tilkynningu um að hætt hafi verið við beiðnina.
- Ef Merkja sem „finnst ekki“ er valið þá merkist eintakið með þeirri stöðu í kerfinu. Beiðnin er afturkölluð en lánþegi fær ekki tilkynningu um það.
- Endurúthluta umsjónarsafni frátektar er notað til þess að senda frátektina áfram á annað samstarfssafn ef ekki er hægt að verða við frátektinni á þínu safni.
- Ef Breyta í millisafnalán er valið þá fer beiðnin af listanum fyrir „Sækja í hillu“ og birtist þess í stað á verkefnalistanum í Gegni undir „Útsendar MSL-beiðnir > Nýtt án samstarfsaðila“ , sjá leiðbeiningar um verkefnalistann. Lánþegi fær tilkynningu um að hætt var við beiðnina hans þar sem beiðninni var breytt í millisafnalánabeiðni.
Skanna eintök
Þegar búið er að taka saman eintökin í „Sækja í hillu“ þá er hægt að fara í „Skanna eintök“. Ef smellt er á tannhjólið í efra hægra horninu koma upp valmöguleikar sem hægt er að skoða. Nánari upplýsingar sýna upplýsingar um tegund beiðni. Mikilvægt er að hafa hakað við „Athuga beiðnir“.
Ath. ekki skal haka við „Skrá innanhúsnotkun“ nema sé verið að skanna inn eintök sem voru einungis notuð innanhúss. Þá þarf að muna að taka hakið af þegar búið er að skanna inn þau eintök.

Í Skanna eintök eru tveir valmöguleikar, „Skanna inn“ og „Endurheimta“. Skanna inn er notað til þess að skanna inn eintök og koma þeim yfir á næsta skref í kerfinu. Það sem er merkt með bláu er það sem er valið. Hægt er að skrifa inn strikanúmerið eða skanna það með því að nota myndavélina á tækinu. Athugið að það þarf að leyfa appinu að fá aðgang að myndavélinni.

Þegar eintök eru skönnuð inn þá birtast þau á lista fyrir neðan. Til þess að losna við eintökin af listanum er hægt að strjúka með fingri til vinstri yfir það eintak sem á að hreinsa út af listanum. Einnig er hægt að smella á blöðin í hægra horninu og þá er hægt að velja „Hreinsa allt“. Listinn hreinsast sjálfkrafa við næstu útskráningu. Ef smellt er á meira er hægt að prenta út miða eða skrá innanhúsnotkun.

Ef eintak er með frátekt þegar það er skannað, þá sendist út bréf til lánþegans um að frátektin hans sé tilbúin í hillu.
Endurheimta
Endurheimta skal einungis nota þegar verið er að endurheimta eintök sem hafa verið sett í tímabundna safndeild og dagsetning á tímabundinni safndeild er ekki runnin upp (eða það var engin dagsetning). Ef hins vegar það er þegar til beiðni um að það eigi að endurheimta eintak sem er í hillu þá birtist það í „Sækja í hillu“ listanum og þá skal nota „Skanna inn“ í staðinn.
Ath. þegar verið er að nota endurheimta þá birtast eintökin ekki á lista fyrir neðan þegar verið er að skanna þau inn en samt færast eintökin yfir á rétta safndeild.
Gervigreindaraðstoð
Skrásetjarar sem hafa fengið heimild til að nota gervigreindaraðstoð sjá þriðja möguleikann í appinu:

Nánari leiðbeiningar um notkun gervigreindaraðstoðar má finna í Handbók skrásetjara
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina