Að bæta við lánþega sem ekki er í þjóðskrá - bekkjarkort

Breytt Mon, 25 Ág kl 4:02 PM

Mikilvægt er að leita af sér allan grun að lánþeginn finnist örugglega ekki í kerfinu með nafni / kennitölu áður en farið er að frumskrá hann í kerfið.


Til þess að skrá nýjan lánþega sem finnst ekki í kerfinu skal fara í  Umsjón með lánþegaþjónustu" undir „Útlán“. 





Á þeirri síðu er smellt á „Skrá nýjan notanda“.





Nú opnast ítarlegt skráningarform  



  • Ekki skal haka við „Finna notanda í öllum safnakjörnum" eða „Bæta við sem staðgengli í útlánum“.


  • Nauðsynlegar upplýsingar sem þarf að fylla út eru „Eftirnafn“ og „Notendahópur“.


  • Það þarf að nota „Aðalauðkennið“ sem að kerfið útbýr fyrir lánþegann. Hins vegar ef um að ræða einstakling sem sýnir fram á kennitölu frá Þjóðskrá Íslands þrátt fyrir að finnast ekki í Gegni skal nota kennitöluna frá Þjóðskrá Íslands í staðinn fyrir „Aðalauðkennið“ sem kerfið býr til.

  • Það skal velja „Bæta lánþega í landskjarna - Já“ undir  „Umsjónarupplýsingar notanda“. Þá flyst skráningin upp í Landskjarnann og aðrir safnakjarnar geta séð lánþegann í kerfinu. Einnig sameinast færsla lánþegans við færslu sem verður til við uppfærslur frá Þjóðskrá Íslands.


  • Þegar einstaklingar eru skráðir er mikilvægt að skrá fæðingardag. 


  • Svo skal smella á „Uppfæra notanda“.



Það er tvennt sem gerist þegar smellt er á „Uppfæra notanda“.


    1. Lánþegafærslan verður til í kerfinu


    2. Lánþeginn fær lánþegaheimild á bókasafnið


Þegar búið er að útbúa lánþegann þarf að passa að fylla út allar nauðsynlegar upplýsingar svo sem netfang, símanúmer og heimilisfang. Fylla skal þær upplýsingar út á samskiptaupplýsingasíðu.


  

Bekkjarkort eða annars konar kort sem eru ekki tengd einstaklingum

  • Ef um er að ræða kort sem tengist ekki einstaklingi er mikilvægt að fylla út nöfnin með lýsandi upplýsingum sem tengjast bókasafninu svo hægt sé að greina á milli korta þegar verið er að fletta þeim upp. Kortin verða til fyrir allan safnakjarnann og því þarf að koma skýrt fram hvaða bókasafn á kortið.


  • Það þarf að nota „Aðalauðkennið“ sem kerfið útbýr. 

  • Aðrar upplýsingar eru fylltar út eins og hjá manneskju, nema það má sleppa fæðingardegi.




Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina