Innskráning lykilorð og PIN númer

Breytt Tue, 23 Apr 2024 kl 10:00 AM


Innskráning      

Lánþegi hefur val um að skrá sig inn með notendanafni og lykilorði eða Rafrænum skilríkjum/Íslykli 




Á leitir.is þarf að byrja á að velja viðeigandi safnakjarna úr lista, til að fá fram ofangreindan innskráningarglugga.  

 


Slá inn notendanafn og lykilorð.    


Þá opnast Leitir.is síðan, með nafninu þínu efst í hægra horni.



 

Að breyta um PIN númer fyrir sjálfsafgreiðsluvélar   


Notendur eiga að geta breytt PIN númerinu sínu fyrir sjálfsafgreiðsluvélarnar sjálfir með því að skrá sig inn á leitir.is og fara inn í „Mínar síður“.  






Inni á „Mínar síður“ þarf að finna „Persónuupplýsingar“.




Notandi getur þar skrifað inn nýtt PIN númer. Það á aðeins að fylla út reitinn „PIN fyrir sjálfsafgreiðsluvélar“ og skilja hina reitina eftir auða. 



Svo skal ýta á vista. PIN númerið skal vera 4 tölustafir og má ekki innihalda bókstafi. 



Ef lánþegi vill fá aðstoð við að útbúa nýtt lykilorð er hægt að breyta um lykilorð bæði á grunn- og ítarlegu upplýsingasíðu lánþega (sjá að breyta grunnupplýsingum og ítarlegar lánþegaupplýsingar). Þar er farið í PIN-númer. 


 



PIN númerið skal vera 4 tölustafir og má ekki innihalda bókstafi. Svo skal ýta á vista. Þá fær lánþeginn tölvupóst um að PIN númerinu hans hafi verið breytt.                   


ATH mynd hér að ofan - fá betri




Hvernig er nýtt PIN númer fyrir sjálfsafgreiðsluvélar útbúið? - (á aðeins við um ALM og LBS) 



Lánþegar geta útbúið PIN númer á leitir.is með því að fylgja verklagi sem lýst er í þessu myndbandi:   https://tinyurl.com/mr4c9ju5  

Starfsmenn bókasafns geta líka útbúið lykilorð fyrir lánþegann með því að fylla út í reitinn „PIN-númer“ í „Upplýsingar um notanda“ í Gegni.                




Hver er munur á lykilorði og PIN númeri?   


Svo lánþegi notar lykilorð ef hann skráir sig með notandanafni inn á leitargáttina.  Eitt lykilorð þarf fyrir hvern safnakjarna þar sem notandi er með lánþegaréttindi.  Lykilorð þarf að vera að minnsta kosti 8 stafa langt og má ekki innihalda notendanafnið eða kennitölu.


PIN númer er notað til innskráningar á sjálfsafgreiðsluvélum safna.  PIN númerið á að vera 4 tölustaðir að lengd.  Ekki er hægt að nota bókstafi.


Sama lykilorð og notað er fyrir innskráningu í almenningsbókasafn er notað til innskráningar á Rafbókasafnið.




Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina