EFNISYFIRLIT
- Frátekt á bók sem er skilað
- Frátekt á bók sem er skilað á öðru safni
- Frátekt á bók sem er skilað í sjálfsafgreiðsluvél
Frátekt á bók sem er skilað
Þegar gögnum er skilað í „Skila eintökum“ glugganum birtast alltaf upplýsingar um hvert gagnið á að fara í glugganum „næsta skref“. Ef um frátekt er að ræða þá kemur upp gluggi sem segir að eintakið á að fara í frátektarhilluna.


Um leið og eintakið hefur verið skannað inn þá sendist sjálfkrafa tölvupóstur til lánþegans sem segir að gagnið sé tilbúið til afhendingar.
Ef ske kynni að bókin er skönnuð inn í „Skanna eintök“ í staðinn fyrir „Skila eintökum“ þá kemur ekki upp gluggi sem segir að um frátekt sé að ræða heldur stendur einungis að endastaður sé „Í frátektarhillu“. Lánþegi fær sendan tölvupóst um að frátektin sé tilbúin.

Ath. þetta á ekki við um bókasöfn sem eru með prentpúka stillta.Ef kveikt er á virkja flýtiprentun þegar gagni er skilað í „Skila eintökum“ birtist prentgluggi sem spyr hvort eigi að prenta út beiðnamiða fyrir gagnið.
Til þess að virkja sjálfkrafa prentun í „Skanna eintök“ þarf að haka við „Prenta miða sjálfkrafa“ annars prentast enginn miði út.

Frátekt á bók sem er skilað á öðru safni
Þegar gögnum er skilað í „Skila eintökum“ á öðru safni kemur upp athugasemd um að endastaður eintaks er annar en núverandi safn.


Ef gagn er skannað í „Skanna eintök“ þá kemur ekki upp gluggi sem segir að gagnið eigi að fara í flutning vegna frátekta. Þá þarf að skoða línuna og athuga hvar endastaður er og hver er tegund beiðnar/ferlis.

Frátekt á bók sem er skilað í sjálfsafgreiðsluvél
Sjálfsafgreiðsluvélar eru með mismunandi stillingar eftir því hvaða safni þær tilheyra. Alltaf þarf þó að skanna gagn í Gegni til að vita hver endastaður gagns er. Lánþegi fær ekki póst um að frátekt sé tilbúin fyrr en gagn er skannað í Gegni.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina