Stafrænt bókasafnskort - Inngangur

Breytt Fri, 15 Nóv kl 9:57 AM

Aðgangur bókasafna að Smartsolutions vef

Landskerfi bókasafna hefur í samstarfi við fyrirtækið Smartsolutions útbúið stafræn bókasafnsskírteini sem bókasöfn og lánþegar þeirra geta notað til þess að auðkenna sig.

Til þess að starfsmenn bókasafna geti aðstoðað lánþega við að setja upp bókasafnsskírteini í símann sinn þarf bókasafnið að vera búið að stofna aðgang til þess að nota vef Smartsolutions. Til þess að fá aðgang að Smartsolutions skal senda verkbeiðni á [email protected] og óska eftir að fá aðgang að kerfinu. Í verkbeiðninni skal vera netfang sem á að vera skráð fyrir bókasafninu. Mikilvægt er að nota netfang sem tilheyrir bókasafninu en ekki persónuleg netföng starfsmanna.

Þegar búið er að útbúa aðgang fyrir bókasafnið fær bókasafnið boð um að skrá sig inn hjá Smartsolutions á netfang bókasafnsins. 

Smella skal á „Join“ í tölvupóstinum og þá opnast gluggi þar sem smella skal aftur á „Join“. Þá opnast síða þar sem fylla þarf út nafn, símanúmer og lykilorð fyrir bókasafnið og haka við „I agree to the Terms and Conditions“ svo skal smella á „Register“.



Þegar bókasafnið hefur fengið aðgang að Smartsolutions geta starfsmenn farið að stofna notendur og og haft umsjón með notendum stafrænna bókasafnsskírteina. Athugið að aðgangur að Smartsolutions síðunni sýnir notendur á landsvísu og ekki er því hægt að einangra skírteini við ákveðið safn, s.s. þið sjáið öll skírteini sem eru kerfinu.

Þegar notendur eru stofnaðir þá eru núverandi strikamerki þeirra sjálfkrafa sótt í Gegni. Engin lánþegaréttindi fylgja stafrænu bókasafnskorti eða strikamerkjunum. Lánþegar þurfa að vera með gild skírteini (s.s. lánþegaréttindi) í Gegni til þess að geta notað kortið.

Þegar bókasafn skráir sig inn á https://smartsolutions.is/ er hægt að smella á „Pass templates“ til þess að sjá útlit á bókasafnskortinu sem er í boði hjá Landskerfi bókasafna. Ekki er hægt að breyta útliti kortsins heldur er um að ræða eitt staðlað kort sem er eins hjá öllum söfnum.



Bókasöfn geta dreift QR kóða og hlekk sem lánþegar geta notað til þess að setja sjálfir upp bókasafnsskírteini en einnig er kóði og hlekkur í boði á forsíðu leitir.is

Bókasöfn geta nálgast kóðann og hlekkinn með því að smella á lánþegaskírteinið og síðan á hnappinn „Distribute by codes“.


Þessi síða sýnir tvo möguleika á dreifingu heimasíðu sem þarf að nota til þess að setja upp stafræn skírteini í síma. Fyrri möguleikinn er að afrita hlekk sem hægt er að senda áfram eða setja upp á heimasíðu bókasafna og seinni möguleikinn er að nota QR kóða sem hægt er að hlaða niður og prenta út og hafa aðgengilegan á bókasafninu sínu eða setja upp á heimasíðu bókasafna.



Leiðbeiningar um útgáfu stafræns bókasafnsskírteinis

Hér eru leiðbeiningar fyrir lánþega sem sækir um stafrænt bókasafnsskírteini með rafrænu skilríki.

Hér eru leiðbeiningar fyrir bókasöfn sem aðstoð lánþega við að sækja sér stafrænt skilríki. 

Mikilvægt er að athuga að allir (sem eru í þjóðskrá) geta sótt sér bókasafnsskírteini óháð því hvort að þeir séu með lánþegaréttindi á bókasafni eða ekki. Til þess að bókasafnsskírteinið virki þarf lánþegi að vera með gilt skírteini á því bókasafni sem hann vill nota. Kortið sjálft veitir engar heimildir og virkar eins og plast kortið.






Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina