EFNISYFIRLIT
Um námskeiðið
Rafbókasafnið er alltaf opið og aðgengilegt fyrir lánþega almenningsbókasafna eða samsteypusafni fyrir almenning og grunnskóla. Í Rafbókasafninu eru hljóðbækur, rafbækur og tímarit.
Í nóvember 2025 var boðið upp á örnámskeið fyrir starfsfólk safnanna. Markmiðið var að kynna Rafbókasafnið, hvaða efni það býður upp á og hvernig starfsfólk getur aðstoðað lánþega sína við að nýta sér safnkostinn. Farið var yfir hvaða tæki er hægt að nota fyrir Rafbókasafnið, bent á bækling fyrir lánþega og annað kynningarefni sem er aðgengilegt öllum aðildarsöfnum Rafbókasafnsins.
Til þess að geta skráð sig inn á Rafbókasafnið og nýtt sér safnkostinn þurfa lánþegar að eiga gilt skírteini hjá einhverju almenningsbókasafni. Auðkenning er sú sama og er notuð til að skrá sig inn á Leitir.is: strikamerki eða númer á bókasafnskortinu og 8 stafa lykilorð.
Glærur og upptaka
Upptaka frá námskeiði 27. nóvember 2025:
Glærur frá námskeiði 27. nóvember 2025:
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina