Safn tekur á móti beiðni um millisafnalán

Breytt Thu, 12 Feb kl 6:50 PM

Almennar upplýsingar um millisafnalán : Millisafnalán - inngangur  



EFNISYFIRLIT


Skref 1 - Beiðni birtist á verkefnalista starfsmanna sem „Aðsendar MSL-beiðnir“


Þegar bókasafn hefur fengið senda til sín beiðni um millisafnalán birtist beiðnin á verkefnalista hjá safni eintaksins.

Til þess að vinna með beiðnina er smellt á „Aðsendar MSL-beiðnir“ og „Nýtt – án úthlutunar“ í verkefnalistanum.



Skref 2 - Smella á beiðnina – titilinn – athuga hvort að eintak sé tiltækt. Sækja eintak í hillu


Þegar smellt er á titilinn opnast yfirlitssíða þar sem hægt er að skoða hvort að eintakið sé tiltækt á safninu.


Smella svo á X til þess að loka glugganum. 

Næst þarf að sækja eintakið upp í hillu.  


ATH: Bókasafn eintaksins má alls ekki lána eintakið á neitt lánþegakort. Kerfið heldur utan um millisafnalánið á annan hátt.




Skref 3 - Smella á „Senda sem áþreifanlegt eintak“ og fylla út form 


Þegar búið er að sækja eintak er farið í þrípunktana hjá titlinum í „Aðsendar MSL-beiðnir“ og smellt á „Senda sem áþreifanlegt eintak“.  



Þá opnast form sem þarf að fylla út.

 

  • Haka við Já hjá „Prenta miða sjálfkrafa“, ef vill
  • Setja inn skiladag ef þarf annað en mánuð
  • Skanna inn strikamerki eintaksins


Skiladagur er sjálfkrafa 1 mánuður ef reiturinn er tómur. Hægt er að setja inn dagsetningu ef vill. Einnig er hægt að haka við „Prenta miða sjálfkrafa“ ef starfsmaður vill senda kvittun með bókinni. 

Svo þarf að skanna inn strikamerki eintaks og velja „Í lagi“ ef það gerist ekki sjálfkrafa. Þá lokast formið.  

Beiðnin er nú með stöðuna „Sent á áþreifanlegan hátt“.



Skref 4 - Pakka inn og senda eintak  


Næsta skref er að pakka eintakinu inn og setja í póst. 

Ef leitað er að titlinum núna þá hefur eintakið færst tímabundið í safndeildina Millisafnalán. 


Nú er boltinn hjá samstarfssafninu. 

Þegar eintakinu hefur aftur verið skilað á heimasafnið þarftu að nota leiðbeiningarnar Eintak skilar sér úr millisafnaláni á heimasafn



Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina