Almennar upplýsingar um millisafnalán : Millisafnalán - inngangur
Stundum þarf bókasafn að hafna beiðnum lánþega sinna um millisafnalán.
Byrja þarf á að finna beiðnina, annað hvort út frá verkefnalistanum eða í lista yfir allar útsendar beiðnir (Útlán > Útsendar MSL-beiðnir)

eða

Þegar beiðnin er á skjánum er smellt á þrípunktana hjá titlinum og velja „Hætta við“

Þá opnast gluggi sem þarf að fylla út.
- Ástæða þess að hætt er við beiðni - Velja úr felliglugga
- Hægt er að bæta við athugasemdum ef vill
- Kerfið sendir tölvupóst til lánþegans ef hakað er við „Láta notanda vita“
Að lokum skal smella á „Staðfesta“.

Beiðnin hefur nú verið afturkölluð og er með stöðuna „Starfsmaður hætti við“.

Ef vill, þá má breyta stöðunni í „Lokið“. Til þess að breyta stöðunni er hakað við beiðnina og farið í „Breyta stöðu“.

Ef skjárinn er lítill þá getur „Breyta stöðu“ verið falið á bak við þrípunkta.
ATH: Ekki er ráðlegt að velja „Fjarlægja beiðnir“ því þá er ekki hægt að vinna tölfræði út frá beiðnunum.Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina
