Árslokatölfræði - Útlán

Breytt Fri, 31 Jan kl 2:41 PM

Búið er að festa inn Árslokatölfræðina undir „Greining“. Til þess að komast inn í aðra tölfræðihluta Gegnis sjá : Að opna tölfræði í Analytics 



Árslokatölfræði - Útlán

Þegar komið er í skýrsluna opnast átta flipar með valkostum efst á skjánum. Skýrslan opnast á heildaryfirliti fyrir allt landið.


 

Aðrar skýrlur í boði eru:

Útlán eftir mánuðum

Útlán eftir safndeild

Útlán eftir reglu eintaks

Útlán eftir lánþegahóp

Útlán eftir útlánaborði

Lánþegar eftir fæðingaráratug og lánþegahóp

Frátekir í efni safnsins


Útskýringar fylgja hverri skýrslu fyrir sig. 


Fyrir þessar skýrslur þarf að velja tiltekið bókasafn sem á að skoða.


Þegar smellt er á annan flipa þá opnast gluggi þar sem þarf að velja safn og ár sem á að skoða. Velja skal bókasafn undir „Library Name“ og árið. Svo skal smella á  „Continue“.

 


Þegar smellt er á næstu skýrslu í öðrum flipa þarf aftur að velja „Continue“. Eftir að hafa valið „Continue“ í tilteknum flipa þá vistast valið. Ef breytt er um valið bókasafn í einum flipa breytist það fyrir alla flipa. 


Ef velja á annað bókasafn í flipa sem búið er að velja „Continue“ þá skal velja „Reset“ og „Clear All“  svo skal velja næsta bókasafnið og smella á „Apply“. 



Athugið hægt er að skoða tölfræði fyrir mörg bókasöfn í einu með því að haka við mörg bókasöfn undir „Library Name“. Þá sjást sér skýrslur fyrir valin bókasöfn.




Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina