Sjá myndband neðst á síðunni.
Þessi hluti ferilsins er einungis mikilvægur ef þarf að laga raðtáknið, til að mynda þegar um nýjar forðafærslur er að ræða.
Kerfið sér hvaða raðtákn hefur verið notuð í sömu forðafærslu og afritar hana yfir á öll eintök.
EFNISYFIRLIT
- Skref 1 - Smella skal á „Eintök í vinnslu“ (undir „Aðföng“ í vinstri valmynd).
- Skref 2 - Smella á þrípunktana og velja „Breyta eintaki í safnskrá“.
- Skref 3 - Til þess að breyta forðafærslunni er smellt á hlekkinn undir „Forði“ hægra megin á skjánum eða í borðanum efst uppi á skjánum (fer eftir skjálögun).
- Skref 4 - Smella á „Breyta“.
- Skref 5 - Laga raðtáknið í línu 852. Passa að stroka ekki út $$h.
- Skref 6 - Smella á „Vista og losa færslu“, fara til baka í „Eintök í vinnslu“.
- Skref 7 - Aðeins ef þarf að breyta um strikamerki skal smella á „Fela lýsigagnaritil“, breyta um strikamerki og velja „Vista“.
Skref 1 - Smella skal á „Eintök í vinnslu“ (undir „Aðföng“ í vinstri valmynd).
Það er farið í „Eintök í vinnslu“ undir „Aðföng“ í vinstri valmyndinni.
Eftirfarandi stillingar þarf einungis að stilla einu sinni og svo festast þær inni.
Það þarf að passa að „Tegund verkbeiðni“ sé alltaf stillt á „Acquisition technical services“.
Mikilvægt er að fara í tannhjólið og velja „Raðtákn“ og fara neðst í listann og velja „Lokið“. Þá er hægt að sjá raðtáknið á nýju titlunum og skoða hvort það sé allt rétt skráð.
Athugið að velja „Raðtákn“, en alls ekki „Raðtákn eintaks“.
Það er hægt að sía listann eftir ferilstöðu eintakanna í „Staða ferils“. Til þess að sjá allan listann skal hafa stillt á „Allt“.
Skref 2 - Smella á þrípunktana og velja „Breyta eintaki í safnskrá“.
Kerfið býr oftast til raðtákn sjálfkrafa út frá Dewey númeri sem er tekið úr bókfræðiskráningunni. Ef það þarf að breyta raðtákninu á þínu safni þá þarf að smella á þrípunktana og velja „Breyta eintaki í safnskrá“.
Þá opnast gluggi sem heitir „Ritill fyrir áþreifanleg eintök“.
Skref 3 - Til þess að breyta forðafærslunni er smellt á hlekkinn undir „Forði“ hægra megin á skjánum eða í borðanum efst uppi á skjánum (fer eftir skjálögun).
eða:
Skref 4 - Smella á „Breyta“.
Þá opnast gluggi sem heitir Færsluyfirlit og þar skal smella á „Breyta“ til þess að laga forðafærsluna.
Skref 5 - Laga raðtáknið í línu 852. Passa að stroka ekki út $$h.
Nú opnast lýsigagnaritillinn. Aftarlega í línu 852 birtist $$h og tillaga að raðtákni þar fyrir aftan. Í sumum tilfellum birtist textinn „Flokkstala hér“.
Ef ekkert $$h er í línunni þarf að bæta því við. Það þarf líka að passa að eyða hvorki út $$h né bilinu á milli $$h og raðtákns.
Hér er sett inn raðtákn samkvæmt venjum á viðkomandi safni. Hafa þarf í huga að raðtáknið í forðafærslunni gildir fyrir öll eintök af sama titli sem eru í sömu safndeild.
ATH: Þegar kjalmiðinn er prentaður kemur ný lína á eftir hverju bili í raðtákninu. Ef nauðsynlegt er að setja bil á milli orða sem eiga að vera í sömu línu þarf að nota fastbil (non-breaking space). Það er gert með ALT-0160, þ.e. halda ALT takkanum niðri og slá inn 0160 á talnaborðinu hægra megin á lyklaborðinu. Þá verður til önnur tegund af bili sem kallar ekki á línuskiptingu í útprentun.
Skref 6 - Smella á „Vista og losa færslu“, fara til baka í „Eintök í vinnslu“.
Þegar búið er að laga raðtáknið er farið í „Vista og losa færslu“ í flettiglugga undir „Vista“ eða ýtt á flýtitakkana Ctrl+Alt+R á lyklaborðinu.
Þegar kerfið hefur lokið við að vista þá hverfur færslan úr lýsigagnaritlinum og þá er hægt að fara aftur yfir í „Eintök í vinnslu“. Ef það þarf að breyta um strikamerki skal fylgja næsta skrefi.
Skref 7 - Aðeins ef þarf að breyta um strikamerki skal smella á „Fela lýsigagnaritil“, breyta um strikamerki og velja „Vista“.
Ef það þarf að breyta um strikamerki þá er farið í „fela lýsigagnaritil“ neðst í vinstra horninu eða ýtt á Alt+M á lyklaborðinu.
Þá opnast aftur gluggi sem heitir „Ritill fyrir áþreifanleg eintök“.
Hér er hægt að stroka út strikamerkið og setja inn viðeigandi strikamerki. Ekki skal smella á „Búa til“.
Svo skal smella á „Vista“ og þá opnast glugginn aftur inn í „Eintök í vinnslu“.
Sjá leiðbeiningar fyrir næsta skref á aðfangafæribandinu:
4. Kjalmiðaprentun (Eintök í vinnslu og SpineOMatic)
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina