5. Plöstun (Eintök í vinnslu)

Breytt Mon, 7 Okt kl 8:16 AM


Athugið þetta skref er valkvætt og það fer eftir verkferlum bókasafnsins hvort eigi að skrá eintök í plöstun og frágang eða hvort eigi að fara beint í að ljúka ferli.

 

Til þess að skrá eintök í plöstun og frágang þarf að vera í „Eintök í vinnslu“ (undir aðföng í vinstri valmyndinni).



Með því að skrá bækur í plöstun og frágang er hægt að halda betur utan um hvar eintök eru í aðfangaferlinu. Þá er einnig hægt að sía listann í „Eintök í vinnslu“ og þannig sjá einungis eintök sem eru skráð í plöstun og frágang. 

 

Til þess að skrá eintök í plöstun og frágang þarf að byrja á því að haka við þau eintök sem á að vinna með. Svo er farið í Breyta stöðu  og valið „Plöstun og frágangur 1“ og svo smellt á  Breyta stöðu“ bláa hnappinn. 





Þá fá eintökin nýja ferilstöðu og hægt er að sía listann eftir þeirri ferilstöðu í „Staða ferlis“


    

Þegar búið er að plasta bækurnar og þær eru tilbúnar til að fara upp í hillu þarf að ljúka við aðfangaferilinn. 


Sjá leiðbeiningar fyrir næsta skref á aðfangafæribandinu: 


        6. Ljúka ferli (Eintök í vinnslu eða skanna eintök)





Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina