Tvær mismunandi leiðir eru til að eyða mörgum eintökum í einu.
EFNISYFIRLIT
Að eyða mörgum eintökum úr sömu forðafærslu
Hægt er að eyða mörgum eintökum í einu með því að fletta titli upp í „Forðafærslur fyrir áþreifanleg eintök“.
Smelltu síðan á þrípunktana við forðafærsluna og veldu „Skoða eintök“. Þá opnast rennigluggi þar sem þú getur hakað við þau eintök sem á að eyða.
Veldu að lokum „Umsjón með völdum atriðum“ og smelltu á „Fjarlægja eintök“.
Þegar smellt er á "Fjarlægja eintök" birtist gluggi sem spyr: „Viltu örugglega fjarlægja eintakið?“. Smelltu á „Staðfesta“.
Athugið: ekki er hægt að eyða út eintökum sem eru í útláni.
Ef síðasta eintaki er eytt:
Ef verið er að eyða síðasta eintakinu úr forðafærslunni birtist gluggi sem spyr hvað eigi að gera við forðafærsluna.
Best er að haka við „Eyða bókfræðifærslu (nema annar forði sé til staðar)“.
Þá eyðir kerfið forðafærslunni og, ef um er að ræða síðustu forðafærslu í bókfræðifærslunni, eyðist bókfræðifærslan einnig. Ef þetta er ekki gert getur tóm forðafærsla og bókfræðifærsla legið eftir inni í kerfinu.
Að eyða eintökum með Quick Delete appinu
Quick delete item er forrit í boði fyrir notendur Gegnis sem gerir þeim kleift að skanna inn eintök til þess að eyða eintökunum út á einfaldan hátt.
Uppsetning á Quick Delete:
1. Farðu í „Miðstöð skýjaforrita“ efst í hægra horninu.
2. Leitaðu þar að „Quick Delete“.
3. Veldu „Virkja“.
Notkun:
Passaðu að hafa ekki hakað við „Override“.
Veldu „Delete“ hjá „Holdings“, til að eyða forðafærslunni með síðasta eintakinu.
Veldu einnig „Delete“ hjá „Bibs“, til að bókfræðifærslan eyðist úr safnakjarnanum ef ekkert annað safn á eintak.
Bókfræðifærslan verður þó áfram til í landskjarna.
Glugginn ætti að líta svona út áður en þú byrjar að skanna inn eintök til að eyða:
Athugið: ekki er hægt að eyða út eintökum úr söfnum þar sem starfsmaður hefur ekki heimildir.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina