EFNISYFIRLIT
Hvað er eintakastaða?
Eintakastaða (áður kallað „regla eintaks“) er oft notuð til að lýsa því hvernig eintak lánast út.
Útlánareglur geta byggst á öðrum atriðum í eintakinu, t.d. safndeild eða efnistegund. Reiturinn fyrir eintakastöðu er ekki skyldureitur, en flest söfn nota samt eintakastöðu til að stýra útlánareglum. Það er þó ekki öruggt að allar eintakastöður séu skilgreindar í útlánaregluverki bókasafnsins. Þetta á sérstaklega við um bókasöfn sem rukka sektir eða eru með aðrar sértækar útlánareglur.
Dæmi:
Bókasafn sem venjulega lánar eintök í 14 eða 30 daga með mismunandi sektum gæti viljað bæta við 3 daga útlánum. Þá væri ekki nóg að velja „3 dagar“ úr fellilista inni í eintakinu, heldur þyrfti líka að láta Landskerfi bókasafna vita hvaða aðrar útlánareglur eiga að gilda um slík eintök.
Margar eintakastöður eru sértækar fyrir ákveðnar safnategundir og eru því aðeins í boði í viðkomandi safnakjörnum.
Verði breytingar á gjaldskrá safns þarf að tilkynna það til Landskerfis bókasafna svo hægt sé að uppfæra stillingar í kerfinu.
Eintakastöður í Gegni
Eintakastöður eftir safnakjörnum:
Heiti | Kóði | ALM | GRUNNSK | FRAMHSK | SERFR | HEILBR | HALA | HR | LHI | LBS |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 dagur | 01 | X | X | X | X | X | ||||
2 dagar | 02 | X | X | X | x | |||||
3 dagar | 03 | X | X | X | X | X | X | X | X | |
4 dagar | 04 | X | ||||||||
7 dagar | 07 | X | X | X | X | X | X | X | X | X |
10 dagar | 15 | X | X | |||||||
14 dagar | 14 | X | X | X | X | X | X | X | X | |
30 dagar | 30 | X | X | X | X | X | X | X | X | X |
6 vikur * | 06 | X | ||||||||
2 mánuðir | 32 | X | ||||||||
3 mánuðir | 33 | X | X | |||||||
6 mánuðir | 36 | X | X | |||||||
12 mánuðir | 39 | X | X | X | ||||||
Annarlán | 37 | X | X | X | X | X | ||||
Vetrarlán | 38 | X | X | X | ||||||
Innanhússlán | 09 | X | X | X | X | X | X | X | ||
Afnot á safni | 10 | X | X | X | X | X | X | X | X | |
Óskráð lán * | 17 | X | ||||||||
Lestrarsalslán * | 19 | X | X | |||||||
Takmarkað lán * | 41 | X | ||||||||
Afnot óheimil | 42 | X | ||||||||
Vantar á Landsbókasafn | 43 | X | ||||||||
Tæki og tól * | 60 | X |
* Í endurskoðun
Sumarið 2025 fór fram tiltekt og samræming á kóðum og heitum fyrir eintakastöður. Við tiltektina voru nokkrar eintakastöður teknar úr notkun og fengu heitið „z Ekki notað“ og með kóðanúmer í sviga fyrir aftan. Þessar eintakastöður þurfa að vera til staðar um sinn vegna tölfræðivinnslu, en munu að lokum hverfa úr kerfinu.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina