Að skoða útlána- og breytingasögu eintaks

Breytt Fri, 12 Sep kl 11:30 AM

Til þess að skoða upplýsingar um eintök þarf að leita að eintökunum undir „áþreifanleg eintök“, sjá leiðbeiningar um eintakaleit hér



Efnisyfirlit


Útlánasaga

Útlánasaga úr gamla Gegni fluttist ekki yfir í nýja Gegni. Það er þó hægt að sjá hvernig staða útlána var við flutning vorið 2022.  


Til þess að skoða útlánasögu eintaks er smellt á „Breyta eintaki“ hjá eintakinu. Ef breyta eintak sést ekki þá er það undir þrípunktunum. 



   

Hér eru tveir flipar sem sýna ítarlegri upplýsingar um eintakið, athugasemdir og ferill. 



Undir „Athugasemdir“ sjást allar athugasemdir um eintakið. Undir „Athugasemdir um talnagögn 3“ stendur Maintenance count sem sýnir útlánafjölda eintaksins fyrir kerfisflutninga vorið 2022.  


Breytingarsaga eigin eintaks

Meðan eintakið er í breytingarham er hægt að skoða sögu eintaksins undir flipanum „Ferill“.



  • Breytingar á eintaki“ sýna allar breytingar sem hafa verið gerðar á eintakinu. Þar með talin útlán.
  • Breytingar á forða“  sýna breytingar sem hafa verið gerðar á forðanum sem eintakið er skráð í.
  • Útlánastarfsemi“ sýnir útlánasögu eintaksins. Þar er hægt að sjá upplýsingar um lánþega og hvar eintakið var lánað út.



Breytingarsaga eintaks í eigu annars safns

Þar sem ekki er hægt að velja að „Breyta“ eintökum í eigu annarra safna þarf að fara aðra leið til að skoða breytingarsögu eintaks sem er í eigu annars safns. 


Í niðurstöðum úr eintakaleit þarf að smella á „Eintök“ undir þrípunktunum:



Listi yfir eintök safnsins birtist, smellið á viðeigandi strikanúmer:


Eintakið opnast í lesaðgangi og hægt er að nálgast eintakasöguna undir flipanum „Ferill“



  • Breytingar á eintaki“ sýna allar breytingar sem hafa verið gerðar á eintakinu. Þar með talin útlán.
  • Breytingar á forða“  sýna breytingar sem hafa verið gerðar á forðanum sem eintakið er skráð í.
  • Útlánastarfsemi“ sýnir útlánasögu eintaksins. 
    Ath: Upplýsingar um lánþega eru aðeins birtar starfsfólki sem hefur heimildir í viðkomandi útlánssafni.



Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina