Beðið um endurnýjun millisafnaláns fyrir hönd lánþega

Breytt Wed, 24 Apr 2024 kl 03:23 PM

EFNISYFIRLIT

Inngangur


Hægt er að hefja endurnýjunarferli millisafnaláns á þrennan hátt, sjá nánar um endurnýjanir.


Þessi grein gerir ráð fyrir að starfsmaður á safni lánþegans byrji endurnýjunarferlið, annað hvort að beiðni lánþegans eða þegar millisafnalánið birtist í verkefnalista merkt sem „Vanskil“.


Skref 1a - Lánþeginn biður safnið um að endurnýja millisafnalánið

Lánþeginn hefur samband við safnið sitt og biður um endurnýjun á millisafnaláni. 


Starfsmaður finnur beiðnina undir Útlán > Útsendar MSL-beiðnir. 



Beiðni lánþegans er með stöðuna „Eintak lánað til lánþega“ ef skiladagur hefur ekki runnið upp, en fær stöðuna „Vanskilabeiðni“ ef komið er fram yfir skiladag.


Skref 1b - Starfsmaður sér í verkefnalista að beiðnin er komin í vanskil

Daginn eftir að skiladagur rennur upp þá fær millisafnalánið stöðuna „Vanskilabeiðni“. Slíkar beiðnir birtast í verkefnalista hjá safni lánþegans undir „Útsendar MSL-beiðnir“:



Með því að smella á „Vanskil - án úthlutunar“ birtast beiðnirnar sem eru í vanskilum.


Skref 2 - Senda endurnýjunarbeiðni til samstarfssafns

Starfsmaður getur óskað eftir endurnýjun millisafnaláns fyrir hönd lánþegans, annað hvort að fyrra bragði eða eftir að hafa ráðfært sig við lánþegann. 

Næsta skref er þá að senda endurnýjunarbeiðni til samstarfssafnsins. Ýta þarf á þrípunktana og velja „Biðja um endurnýjun“


Í forminu þarf að velja inn nýjan skiladag. Einnig er mikilvægt að setja inn texta í athugasemd til samstarfsaðila til að endurnýjunarbeiðnin birtist í verkefnalista hjá samstarfssafninu.

Ýta svo á hnappinn „Endurnýja“



Beiðnin er nú með stöðuna „Endurnýjunar óskað“


Skref 3 - Fylgjast með hvort endurnýjun hafi verið samþykkt

Þegar samstarfssafnið hefur afgreitt endurnýjunina þá fær beiðnin stöðuna „Endurnýjað af samstarfsaðila“. Uppfærð skiladagsetning er einnig sýnileg í beiðninni.

Lánþegi hefur sömuleiðis fengið tölvupóst um að millisafnalánið hafi verið endurnýjað.





Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina