2. Móttaka titla - Taka á móti

Breytt Thu, 23 Okt kl 4:56 PM

Sjá myndband neðst á síðunni.


Móttaka á nýju efni


Þegar búið er að panta er farið í að móttaka eintökin. Þetta er gert þegar þú hefur fengið eintökin í hendurnar frá birgja eftir pöntun eða strax ef þú ert með eintökin fyrir framan þig.


EFNISYFIRLIT


Skref 1 - Smella skal á „Taka á móti“ undir Aðföng í vinstri valmyndinni.




Mikilvægt er að fylgja leiðbeiningunum hér fyrir neðan nákvæmlega.


Aðfangaferlið getur verið flókið í byrjun en þegar búið er að fara einu sinni í gegnum ferlið án þess að vandamál komi upp verður vinnan auðveldari síðar. 

Þegar verið er að vinna með „Taka á móti“ í fyrsta sinn þarf að passa að velja næsta rétta skref í ferlinu.

Mikilvægustu stillingarnar eru undir skrefi 2 og ef þær eru ekki réttar getur þú lent í vandræðum. 


Skref 2 - Passa að haka við „Halda innan deildar“ undir Móttaka á nýju efni


Móttaka á nýju efni hefst með því að haka við „Halda innan deildar“. Þú kemst ekki áfram í aðfangaferlinu nema það sé valið að „Halda innan deildar“. Ef það er ekki gert skráir kerfið eintökin eins og þau séu komin beint upp í hillu.


Þar sem næsta þrep í ferlinu er að laga kjalmerkingar eða uppfæra raðtákn skal velja „Miðar og prentun 1“ (Miðar og prentun 2 getur verið möguleiki hjá stærri söfn þar sem fleiri en einn aðili koma að skráningu).



Skref 3 - Listi á að vera síaður eftir „Allt (nema lokað)“ og vera í flipanum „Einu sinni“.  


Það þarf að sía listann rétt og passa að vera alltaf með stillt á stöðuna Allt (nema lokað)“ til þess að sjá alla titla sem hafa verið pantaðir. Einnig þarf að vera í flipanum Einu sinni“ þegar verið er að vinna með eintök af bókum, spil o.fl. Flipinn „Áskrift“ er notaður fyrir tímarit.



ATH: Ef að titlar sem verið var að panta birtast ekki í Taka á móti þarf að skoða síunina og passa að vera í flipanum Einu sinni. Sjá skref 3. 



„Staða“ á bókunum á að vera „Sent


 

ATH: Ef bækur eru í stöðunni „Í yfirferð“ þarf að laga pöntunarlínuna (POL). 
Sjá leiðbeiningar: Að laga POL línur sem eru í yfirferð

 


Skref 4 - Haka við titlana sem á að móttaka og ýta á „Taka á móti“. Titillinn á að hverfa af listanum.


Næsta skref er að haka við þær bækur sem á að móttaka og ýta á „Taka á móti“.
(Ekki skal nota hnappinn „Móttaka allt“) 



Nú á það sem hakað var við að hverfa af listanum.


Eftir þennan feril eru titlarnir aðgengilegir á leitir.is en skráðir sem ekki tilbúnir til útláns þar sem þeir eru enn í aðfangaferlinu.


Ef eitthvað er fast á listanum þarf að skoða pöntunarlínuna (POL) og athuga hvort að eitthvað hafi gleymst.




Sjá leiðbeiningar um  næsta skref á aðfangafæribandinu: 


3. Uppfæra raðtákn (Eintök í vinnslu og lýsigagnaritill)



 





Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina