Útlánalistar keyrast einungis út einu sinni á dag og sýna útistandandi útlán frá deginum áður. Það er hægt að keyra út sinn eigin lista sem sýnir rauntíma útlán.
Til þess að gera það er notast við ítarlegu leitina. Sjá leiðbeiningar um ítarlegu leitina hér.
Til þess að fara í ítarlegu leitina er smellt á stækkunarglerið hjá leitarglugganum.
Mikilvægt er að vera búin að velja leitina „Eintök“.
Þegar smellt er á stækkunarglerið opnast leit með þremur reitum.
Hægt er að smella á hvern reit og byrja að skrifa það sem verið er að leita að, svo ekki þurfi að skruna í gegnum langan lista.

1. Smella á fyrsta reitinn og skrifa bókasafn, velja svo „Bókasafn (forði)“

2. Velja viðeigandi bókasafn í þriðja reit. Miðjureiturinn skal vera með „Jafngildir“.

3. Næst skal smella á plúsinn til þess að bæta við leitarmöguleikum

4. Nú þarf að velja „Tegund ferlis“ í fyrsta reit, „Jafngildir“ í annan reit og „Útlán“ í þriðja. Leitin lítur þá svona út. Næst skal smella á „Leita“.

Nú birtist heildarlisti yfir öll útlán sem eru útistandandi á safninu. Athugið að það þarf að smella á „Tegund ferlis: Útlán“ til þess að sjá hver er með eintakið í láni.


5. Að draga listann út sem excel skjal.
Athugið ekki er hægt að draga út lista með nöfnum lánþega með þessari aðferð. Til þess að vista leitina niður í Excel skjal er smellt á blað sem sýnir ör til hægri.


Þegar smellt er á takkann koma upp möguleikarnir „Excel (núverandi yfirlit)“ og „Excel (allir reitir)“.
Núverandi yfirlit þýðir að skjal verður dregið út með öllum upplýsingum sem koma fram á síðunni, þ.e.a.s með öllum reitum sem hafa verið valdir í tannhjólinu. (Athugið hægt er að stilla hvaða reitir eru sýnilegir með því að smella á tannhjólið, velja viðeigandi reiti og smella á „Lokið“).
Allir reitir þýðir að skjal verður dregið út með öllum mögulegum reitum sem hægt er að velja í tannhjólin, óháð því hvort reitirnir séu valdir eða ekki.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina