Starfsáætlun Landskerfis bókasafna 2026 - í stórum dráttum

Breytt Wed, 4 Feb kl 8:31 AM

Hér er að finna yfirlit yfir helstu áherslur sem verða í starfsemi Landskerfis bókasafna á starfsárinu 2026.  

Yfirlitið tekur ekki til almennra rekstrarverkefna eða verkefna tengdum Sarpi.


Þróunarverkefni

  • Innleiðing Primo NDE sem er uppfærsla fyrir Leitir.is, þar með taldar safnasíður sem býður upp á mikla möguleika til staðfæringar. Dæmi: bókarúllur og viðburðir.
  • Ný tölfræði Gegnis (með Alma Analytics/Visualization fyrir söfn) með viðbótum rafrænt áskriftarefni. 
  • Gagnaskil til Hagstofu Íslands.
  • Gervigreindaraðstoð í skráningu – í samvinnu við Lbs-Hbs og skráningarráð Gegnis.
  • Innleiðing á Specto Essentials sem er viðbót við Gegni.
  • Frigg  nemendagrunnur – uppsetning og tenging við Gegni – í samstarfi við MMS
  • Viðbætur við bakenda  nýs vefs almenningsbókasafna, bokasofn.is. 
  • Hafa val um hvort kvittun er prentuð út eða senda með tölvupósti. Þróa aðferð sem gerir þetta kleift.

 

Samræming verklags

  • Aðföng í Gegni. Byrjað verður á að yfirfara og endurskoða verklag fyrir Borgarbókasafn. Önnur söfn fylgja í kjölfarið sem og námskeiðið Dýpra í aðföngin. 
  • Leganto hjá Háskólanum á Akureyri. Unnið með flóknari atriði.

 

Gæðaeftirlit og gögn

  • Tiltekt í landskjarna – eytt út draugafærslum og sambærilegu. 
  • Tiltekt á starfsmannaheimildum og endurskoðað verklag fyrir úthlutun starfsmannaheimilda.
  • Þjóðskrá og tiltekt í lánþegafærslum
  • Lýsing eintaks – ábyrgðin er hjá söfnum en LB sinnir eftirfylgni.
  • Syrpan – í samvinnu við grunnskóla.
  • Sjálfvirk raðtákn.
  • Rafrænir tenglar 

 

Nýjungar í rekstri

  • Sjálfsafgreiðsluvefur skóla – uppfærsla.
  • „Normalization“ reglur, nota XSLT.  Byrja á að skoða með Lbs-Hbs.
  • „Statistical Categories“ – frekari hagnýting.
  • Sjálfvirkar keyrslur.
  • Rukkprófílar – reka smiðshöggið á fyrir framhaldsskóla, kynna fyrir grunnskólum.
  • Eigin skýrslugerð – þjálfun fyrir þá sem vilja gera eigin skýrslur (Analytics)

 

Nýmæli eða breytingar tengdar kerfisuppfærslum framleiðanda sem þarf að skoða

  • Nýtt leitarviðmót fyrir leit í eintökum
  • „Fuzzy Search”
  • „Linked Open Data Editor“ 
  • „Linked Open Data - Support Core Functionality for RDA/RDF – Early Access„

Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina