Pöntunarlínur með ítrekun

Breytt Tue, 27 Jan kl 3:18 PM


EFNISYFIRLIT



Inngangur

Í verkefnalistanum birtist stundum „Pöntunarlínur með ítrekun“ (undir „Pöntunarlínur“).


„Pöntunarlínur með ítrekun“ er í raun listi yfir eintök sem ættu að hafa borist en hafa enn ekki verið móttekin (undir „Taka á móti“). 


Stundum eru þetta eintök sem hafa verið í Taka á móti“ of lengi. Til þess að losna við þetta þarf að móttaka eintökin í Taka á móti“.


Oftast eru þetta tímarit sem hefur seinkað frá útgefanda. 


Ef um er að ræða tölublöð sem hefur seinkað frá útgefanda þá er hægt að smella á "Pöntunarlínur með ítrekun" í verkefnalistanum, finna rétta tímaritið í listanum sem birtist og ýta á hnappinn "Breyta áætlaðri dagsetningu". 


Ef hinsvegar það er alveg ljóst að viðkomandi eintök munu ekki berast, þá er einfaldast að afrita strikanúmerið, fara í eintakaleit og fjarlægja viðkomandi eintak.  



Pöntunarlínur með ítrekun

Undir Verkefni á forsíðu skal smella á „Pöntunarlínur“ - þar undir „Pöntunarlínur með ítrekun“. 



Þá birtist listi yfir þær innkaupapöntunarlínur með ítrekun sem tilheyra þínu safni.




Breyta móttökudagsetningu

Ef um er að ræða tölublöð sem hefur seinkað frá útgefanda þá er hægt að smella á "Pöntunarlínur með ítrekun" í verkefnalistanum, finna rétta tímaritið í listanum sem birtist og ýta á hnappinn "Breyta áætlaðri dagsetningu". 



þá birtist gluggi til að fylla inn nýja dagsetningu - og bæta við athugasemd ef vill.



Þegar ný dagsetning er komin, þarf að smella á „Vista“ 



Eintök munu ekki berast

Ef hinsvegar það er alveg ljóst að viðkomandi eintök munu ekki berast, þá er einfaldast að ýta á tímaritið, fara í „eintök með ítrekun" og afrita strikanúmerið, fara í eintakaleit og fjarlægja viðkomandi eintak.



Leita að strikamerkinu undir „Áþreifanleg eintök“.



Þegar færsla eintaksins birtist skal smella á „Fjarlægja“.



Þá birtist gluggi þar sem beðið er um staðfestingu á skipuninni um eyðingu.



Smella á „Staðfesta“.


Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina