Græjur

Breytt Thu, 16 May 2024 kl 01:13 PM


Sjá myndband neðst á síðunni.



Það er hægt að stilla forsíðuna eftir eigin hentisemi og laga græjurnar sem eru þar í boði. 

  

Til þess að finna þær græjur sem eru í boði fyrir forsíðuna skal smella á plúsinn í hægra horninu á síðunni. 

   


Gott er að virkja eftirfarandi græjur:


Verkefni - Það er mikilvægt að virkja verkefnalistann til þess að fylgjast með verkefnum sem bíða þín.


Tilkynningar - Hér koma fram tilkynningar frá Landskerfi bókasafna undir „Tilkynningar“. 


Fyrirspurnir og leiðbeiningar - Hér er hægt að senda inn beiðni og leita að leiðbeiningum í gegnum þjónustugátt Landskerfi bókasafna. 






Verkefnalistinn: Á verkefnalistanum birtast allskonar verkefni, svo sem frátektarbeiðnir, beiðnir um millisafnalán, áminningar um að endurnýja tímaritaáskriftir


Tilkynningar: Landskerfi bókasafna setur reglulega inn tilkynningar í tilkynningagræjuna til þess að láta vita af allskonar breytingum í kerfinu og til þess að benda á nýjar uppfærslur og leiðbeiningar sem hægt er að skoða. Þegar það birtist blátt tákn til hliðar við tilkynninguna er hægt að smella á bláa táknið og fara yfir á aðra síðu með frekari upplýsingum svo sem leiðbeiningasíðu.




Fyrirspurnir og leiðbeiningar:    Hér er hægt að sjá ítarlegri leiðbeiningar um hvernig hægt er að nota fyrirspurnir og leiðbeiningar græjuna til þess að senda inn beiðni eða leita að leiðbeiningum. 




Þegar búið er að haka við þær græjur sem eiga að vera á forsíðunni skal smella á x í hægra horninu til þess að loka glugganum. 


Oft þegar verið er að laga stillingar til þá getur verið gott að skrá sig út og inn til þess að stillingarnar taki við sér. 

Hægt er að færa græjur fram og til baka á forsíðunni með því að smella efst á græjuna og draga hana til.














Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina