EFNISYFIRLIT
Um námskeiðið
Forsenda fyrir því að sækja námskeiðið er háskólapróf í bókasafns- og upplýsingafræði eða að lágmarki að hafa lokið námskeiðinu „Skipulag þekkingar (UPP112F)“ sem er kennt í Háskóla Íslands eða sambærilegu námskeiði. Auk þessa er skilyrði að að vera starfandi hjá aðildarsafni Gegnis.
Námskeiðið er staðnámskeið og verður haldið hjá Landskerfi bókasafna, Katrínartúni 4.
Um er að ræða þriggja daga námskeið og gert er ráð fyrir að kennt verði frá 9:00 – 15:00 alla dagana.
Drög að dagskrá:
Dagur 1 – Læra á kerfið:
- Stutt yfirlit um kerfið
- Skráningarumhverfið, kerfishögun og hjálpargögn
- MARC sniðið, Handbók skrásetjara
Dagur 2 – Undirstaða skráningar:
- Kynning á lýsigagnaritilinum í Gegni
- Hagnýtar upplýsingar, skráning
- Frumskráning og færsluveiðar
Dagur 3 – Verkefnavinna:
- Vinnustofa í skráningu – verklegar æfingar
Athugið:
Hverju aðildarsafni Gegnis er heimilt að senda einn starfsmann endurgjaldslaust á skráningarnámskeið en eftir það er námskeiðsgjaldið kr. 59.749 með vsk. á hvern þátttakanda, miðað við verðskrá 2025.
Dagsetningar og skráning
Námskeiðið var síðast haldið 13-15. október 2025.
Stefnt er að því að halda námskeiðið árlega, námskeiðsáætlun er birt í ágúst hvert ár og í kjölfarið er opnað fyrir námskeiðsskráningu.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina